Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Blaðsíða 8
Jacob Holdt
Amerískar myndir
Þær frásagnir — og ljósmyndir — sem hér fara á eftir gefa talsvert óvenjulega
innsýn í amerískan veruleika, fjalla um þætti hans sem hefur verið furðu lítill
gaumur gefinn. Höfundur er ungur Dani sem kom til Bandaríkjanna 1970 með
40 dollara upp á vasann og ferðaðist síðan „á þumalfingrinum" um 48 ríki næstu
fimm ár. Bók sem hann hefur nýlega gefið út um ferðir sínar birtir fágætar svip-
myndir úr bandarísku hversdagslífi, einkum eins og það horfir við fátæku, þel-
dökku fólki, vannærðu og afskiptu. Hér er því miður ekki kostur á að birta nema
fátæklegt sýnishorn af ljósmyndum Holdts sem eru ákaflega merkilegar og samofnar
allri frásögninni.
Jakobsbréf 5, 1—6
í New Orleans bjó ég hjá svörtum morðingja sem hét Nell. Eins og hinir
morðingjarnir sem ég hef kynnst eða búið hjá var hann ósköp venjulegur
miðlungsmaður sem hafði orðið morðingi af tilviljun eða öllu heldur vegna
aðstöðu sinnar í þjóðfélaginu. Auðvitað leið nokkur tími þar til hann sagði
mér frá fortíð sinni, því hann hafði strokið úr fangelsi í Nevada og hans
var leitað; en eins og aðrir glæpamenn hafði hann að sjálfsögðu þörf fyrir
að trúa öðrum fyrir því sem íþyngdi honum, einhverjum öðrum sem hann
gæti treyst. Enginn getur risið einn undir slíkri byrði.
Við bjuggum í austurhluta New Orleans-borgar ásamt nokkrum öðrum
og Nell reyndi af fremsta megni að lifa venjulegu borgaralegu lífi, að svo
miklu leyti sem aðstæður leyfðu. Hann vissi að hann yrði aftur sendur í
lífstíðarfangelsi ef hann yrði uppvís að einhverju og reyndi því umfram
allt að forðast lögbrot og lifði einkum af því að selja úr sér blóð. Eg var
ekki vongóður um að honum tækist að halda sér utan múranna það sem
eftir væri ævinnar en reyndi af fremsta megni að gera honum þessar smttu
frelsisstundir eins ánægjulegar og uppörvandi og unnt væri. Mér fannst
hann hafa tekið út ærna refsingu, löngu áður en glæpurinn var framinn,
með þeirri fátækt og auðmýkingu sem hann hafði sætt af þjóðfélagsins
342