Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Blaðsíða 36

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Blaðsíða 36
Tímarit Máls og menningar um, eiga einkum upptök sín í Suðurríkjunum, ef til vill vegna þess að þar er skáldsagnahefðin elst og blæbrigði þjóðlífs og tilfinninga ríkust. Meðal skáldkvenna, sem sett hafa svip á nútímabókmenntir, ber að nefna Eudoru Welty (f. 1909) sem lýsir á nærfærinn og hugtækan hátt hrörnandi samfélagi sem er að líða undir lok í skáldsögum eins og „Delta Wedding“ (1946), „The Golden Apples“ (1949), „The Ponder Heart“ (1954) og „Losing Battles“ (1970). Skáldsögur hennar einkennast fremur af Ijúfum minningum og eftirsjá en beiskju eða átökum við samtímann. Carson McCullers (1917—67) er miklu nærgöngulli og afdráttarlausari í lýsingum sínum á týndum lífsgildum, horfnum hefðum, hrörnun sam- félagsins og firringu mannsins. Flestar persónur hennar eru með einhverj- um hætti afskræmdar eða bæklaðar, ýmist andlega eða líkamlega. I fyrstu skáldsögu hennar, „The Heart is a Lonely Hunter" (1940), er til dæmis daufdumbur sakleysingi hafður að eins konar skriftaföður og hjálparhellu heillar borgar og fremur að lokum sjálfsmorð sem verður nömrleg skop- stæling á örlögum Krists. I þessari bók eru endurómar af ógnarstjórn nas- ista í Evrópu, böli kreppuáranna í Bandaríkjunum og kynþáttafordómum í Suðurríkjunum. McCullers samdi allmargar skáldsögur en besta verk hennar er tvímæla- laust „The Ballad of the Sad Café“ (1951) þar sem þrjár hrjáðar og af- skræmdar manneskjur leika hlutverk sín í harmleik einsemdar, vængbrot- inna vona og dauðadæmdrar ástar meðan fangahópur í járnum þjáist, syngur og þolir raunir sínar. Ollu harmsögulegri lýsing á hjálparleysi mannsins er vandfundin. Þriðja skáldkonan frá Suðurríkjunum, Flannery O’Connor (1925—64), var talin meðal merkilegustu eftirstríðshöfunda Bandaríkjanna áður en hún féll frá innan við fertugt. Skáldsögur hennar sameina formsnilld, auðuga skopgáfu og mikla mannlega hlýju. Hún lýsir einkum lífsháttum, hugsunarhætti og umhverfi heittrúarhópa í Georgíu, þar sem guðsdýrkun, tnivilla og stjórnleysi leika lausum hala í „Biblíu-beltinu“ svonefnda. Hún tekur einnig til meðferðar stórborgir Norðurríkjanna þar sem kalt og upplýst frjálslyndi virðir að vettugi hinar dýpri þjáningar mannssálar- innar undir gljáfægðu yfirborði menningar og menntunar. Tvær skáld- sögur hennar, „Wise Blood“ (1952) og „The Violent Bear It Away“ (1960), eru meðal sígildra verka eftir stríð. Bæði Eudora Welty og Flan- nery O’Connor teljast ennfremur í hópi besm smásagnahöfunda Banda- ríkjanna. Frh. 366
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.