Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Blaðsíða 31
Banadarísk sagnagerð ejtir seinna stríð
ráfar um götur New York-borgar þar sem hann finnur fátt annað en lygi,
hræsni og tilgerð. Hann lendir á heilsuhæli þar sem hann segir í fyrsm
persónu sögu bernsku sinnar og æsku á mergjuðu máli sem ber sterkan
keim af götumáli þeirra tíma. Þessi frumlega skáldsaga varð um árabil
eins konar biblía ungs fólks í Bandaríkjunum og víðar, enda túlkar hún
á einkar nærfærinn og nákvæman hátt sálarlíf og viðbrögð óspillts og
viðkvæms ungmennis við rangsnúnum og fjandsamlegum heimi.
Salinger birti árið 1953 níu smásögur í svipuðum anda og skáldsaga
hans og síðan tvær smttar skáldsögur 1961 og 1963, sem fjalla um sömu
fjölskyldu og „The Catcher in the Rye“ og em eins konar framhald eða
frekari útfærsla þeirrar bókar, en í miklu lausara og ruglingslegra formi.
Síðan hefur ekkert frá honum heyrst, en hann ku hafa degið sig út úr
skarkala veraldarinnar og horfið inn í heim íhugunar og trúarbragða.
Meðal annarra höfunda sem samið hafa markverðar bókmenntir um
kjör og örlög gyðinga vestanhafs á síðustu áramgum má nefna Edward
Lewis Wallant (1926—62), sem samdi þrjú meistaraverk á stuttu ævi-
skeiði, Daniel Stern (f. 1928), sem hefur bæði fjallað um örlög gyðinga
austan hafs og vestan, Bruce Jay Eriedman (f. 1930), sem samið hefur
ákaflega kaldhæðnar sögur í létmm dúr um gyðingahamr í Bandaríkjun-
um, og loks Philip Roth (f. 1933), sem öðlast hefur langmestar vinsældir
sinnar kynslóðar fyrir opinskáar og hispurslausar lýsingar á fjölskyldulífi
gyðinga og kynferðisvandamálum þeirra á yngri árum í samskipmm við
fólk af öðmm uppruna. Roth er gæddur ríkri kímnigáfu og gneistandi frá-
sagnargleði. Besta og kunnasta bók hans til þessa er „Portnoy’s Complaint“
(1969).
Þó sagnagerð bandarískra blökkumanna eigi sér all-langa og merkilega
sögu fyrir tilverknað höfunda á borð við William E. Burghardt Du Bois,
Charles Waddell Chesnutt, James Weldon Johnson, Paul Laurence Dunbar
og Jean Toomer, þá er almennt litið svo á að skáldsagnagerð blökkumanna
nái fyrst fullum þroska í seinni heimsstyrjöld. Venja er að miða þessi tíma-
mót við „Native Son“ (1940) eftir Richard Wright (1908—60), þar eð
þessi skáldsaga vakti gífurlegan áhuga og miklar deilur sem enn eimir
361