Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Blaðsíða 29
Banadartsk sagnagerð eftir seinna stríð
sjáandi og trúður, yfirburðahugsuður og hrópandi í eyðimörkinni, tals-
maður og spámaður sinnar kynslóðar.
Tvær aðrar bækur, „The Presidential Papers“ (1963) og „Cannibals and
Christians“ (1966) eru samdar í svipuðum anda hins innblásna spámanns
og hrópanda.
En Mailer heldur einnig áfram að gera tilraunir með skáldsöguformið
í tveimur merkilegum bókum, sem sýna enn nýja hlið á stílsnilld hans og
hugkvæmni: „An American Dream“ (1965) og „Why Are We in Viet-
nam?“ (1967). I fyrri sögimni fer Mailer í gervi harðsoðins leynilögreglu-
söguhöfundar og setur saman bók sem er í senn skopstæling og djúpsæ,
alvöruþrungin lýsing hins fræga ameríska draums um æsilega viðburði,
ofbeldi, klám og úrslitaátök góðs og ills, sakleysis og lífsreynslu. A 32 við-
burðaríkum klukkustundum lifir söguhetjan, Stephen Rojack, allt það
ofbeldi, óhugnað og afskræmingu mannlegra hvata sem stórborg eins og
New York hefur upp á að bjóða.
I seinni sögunni fjallar Mailer um furðulegar bjarndýraveiðar í Alaska
norðan heimskautsbaugs, þar sem öll hin ósýnilegu öfl bandarísks þjóðlífs
koma saman og leika lausum hala á auðnum norðurhjarans, siðblinda og
spilling eldri kynslóðarinnar, frumkraftur mannlegra hvata, tvíbent og lífs-
hættulegt bræðralag veiðifélaganna, átök föður og sonar, föður og móður,
náinna vina, manns og dýrs. Allir þessir þættir mynda söguvef sem er í
senn dramatískur, dularfullur og þrunginn leiftrandi kímni og málsnilld
sem lyftir sögunni upp á plan lofsöngs um óendanlegan leyndardóm lífsins
og lífshvatanna.
Ymsar af seinni bókum Mailers fjalla um bandarísk innanríkismál með
slíkum hætti að hann hefur af sumum verið nefndur afburðablaðamaður
sinnar samtíðar. „The Armies of the Night“ (1968) fjallar um mótmæla-
gönguna miklu til Washington gegn Víetnam-stríðinu. „Miami and the
Siege of Chicago" (1968) tekur til meðferðar hin frægu og rósmsömu
flokksþing Repúblikana og Demókrata. „Of a Fire on the Moon“ (1971)
fjallar um fyrstu lendingu mannaðs geimskips á tunglinu. „The Prisoner
of Sex“ (1972) fjallar um bókmenntir, ástarfarslýsingar og bandarísku
rauðsokkahreyfinguna, sem hann er ekki sérlega hrifinn af. Hvernig sem
flokka ber þessar og aðrar bækur Mailers, fer ekki á milli mála að hann
hefur ásamt mörgum öðrum höfundum átt þátt í að brjóta niður alla veggi
skáldskapar og sagnfræði, uppspuna og sannleika, sjálfsævisögu og ádeilu-
359