Tímarit Máls og menningar - 01.12.1978, Side 26
Tímarit Máls og menntngar
Sagan er barmafull af leiftrandi lífi, eftirminnilegum persónum og fjar-
stæðukenndum atvikum, gagnsýrð af kímni og heitri mannúð. Hugmyndir
og hugsjónir klæðast mannlegu holdi, lífsferill persónanna verður sam-
bland af broslegum harmi og sárgrætilegri gleði. Það er hinn guðdómlegi
gleðileikur nútímalífs með öllum sínum óvæntu og afbrigðilegu uppá-
komum sem Bellow hefur hér dregið upp með sterkum dráttum og ótrú-
legri litagleði.
Ef auðkenna ætti feril Bellows í fáum orðum mætti kannski segja að
verk hans og sérstætt framlag til bókmenntanna felist ekki síst í þeirri
tóntegund sem hann beitir — tóntegund þar sem saman fara formleg
snilld, nær alger örvænting og ávæningur af von. Öll hans verk fjalla með
einum hætti eða öðrum um það stef sem hann tók til meðferðar í fyrstu
skáldsögu sinni, „Dangling Man“, einstakling sem af eðlishvöt eða ytri að-
stæðum hefur dregið sig út úr skarkala heimsins og dinglar, ef svo má til
orða taka, í lausu lofti milli heilans og hjartans og reynir af öllum mætti
að gera sér skynsamlega grein fyrir mannheimi án þess að missa sjónar á
því sem dýpst liggur í mannlegu eðli, því dýrslega, hvötunum. Bellow
hefur sjálfur skilgreint vanda sinn í einni af sínum sárafáu ritgerðum með
þessum orðum: „Við höfum svo fullkomlega afhjúpað blekkinguna um
persónuleika mannsins að við getum tæplega haldið áfram á sömu braut.
... Því verður ekki neitað að maðurinn er ekki það sem almennt var talið
fyrir hundrað árum. Hann er eitthvað. Hvað er hann?“
Segja má að upplausn persónuleikans eða réttara sagt sundurleitt og
sundurlaust eðli hans sé eitt meginstef bandarískra bókmennta eftir stríð,
og þetta stef hefur reyndar fundið hljómgrunn í bókmenntum um heim
allan.
Ef til vill hefur enginn bandarískur höfundur fjallað um það af meiri
ástríðu, dirfsku og einbeitni en Norman Mailer, sem fæddist í New York
árið 1925 og ólst þar upp í gyðingahverfi þar til hann hélt til náms við
Harvard-háskóla með þeim ásetningi að gerast arkítekt. En stéttaskipting
og kynþáttafordómar í þeirri virðulegu stofnun áttu stærstan þátt í því að
hann sneri sér að ritstörfum. Almennt er talið að enginn einn rithöfundur
í Bandaríkjunum sé í sama mæli persónugervingur síns samtíma og Nor-
man Mailer. Hann hefur í senn lifað samtíma sinn og skrifað um hann af
356