Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Page 14

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Page 14
Tímarit Máls og menningar samúð hans með lítilmagnanum, einstæðingnum, sem verður fyrir barðinu á máttarvöldum þessa heims, þolanda kerfisins fremur en upp- reisnarmanninum gegn því. Sumar eftirminnilegustu persónur hans eru einmitt slík olnbogabörn þjóðfélagsins sem eiga sér enga uppreistarvon. Hnitmiðaður og þrautagaður stíll Halldórs er þó gerhreinsaður af allri til- finningasemi; hann missti aldrei taumhaldið á meðaumkun sinni, sagði aldrei hug sinn allan, heldur lét lesanda eftir að draga ályktanir af því sem hann lýsti. A þennan hátt urðu bestu sögur hans tákn um annað og meira en þær virðast við fyrstu sýn, merking þeirra dýpri og víðtækari. Því fer þó fjarri að Halldór hafi einskorðað persónulýsingar sínar við þjóðfélagsafstöðu eina saman. Annað megineinkenni á sögum hans er áhugi á því sem býr að baki orða og viðbragða fólksins sem sagt er frá. Hann beinir athygli lesandans margoft að innra manni persóna sinna, skap- gerð og eðlisþáttum, sem skipta sköpum um framkomu þeirra í sögunni. Venjulega er þetta gert með óbeinum hætti, með því að láta persónurnar koma upp um hugarfar sitt með orðum og athöfnum fremur en með beinum lýsingum á sálarástandi þeirra. Halldór studdist þar við fornan frásagnar- hátt Islendingasagna, en tengdi hann við sálarfræði nútímans. Hann féll aldrei í þá gildru að prédika, heldur lét lesandann um að draga sínar ályktanir, leggja sinn skilning í þá atburði sem hann lýsti á sinn hlédræga en áhrifamikla hátt. Þessir eiginleikar Halldórs sem hér hafa verið gerð næsta ófullkomin skil, hafa fyrir löngu skipað honum sess meðal besm smásagnahöfunda á íslenska mngu, fyrr og síðar. Það er engin tilviljun að ýmsar smásögur hans hafa verið þýddar á a. m. k. þrettán þjóðmngur, svo að mér sé kunn- ugt, og á sumum þeirra hafa komið út heil söfn af smásögum hans. Af því má ráða að sú almenna skírskotun sem sögurnar búa yfir nær til lesenda víða um lönd, enda þótt sögusviðið sé íslenskt sjávarþorp eða sveitabær. En einmitt þetta er aðal mikils rithöfundar. I ritgerð sem Halldór skrifaði um Maxim Gorkij í Rauðum pennum segir hann m. a. að Gorkij hefði í verkum sínum sýnt fram á að „dýrseðlið er ekki, þrátt fyrir allt, hornsteinninn í eðli mannsins, en að það sem niður- lægir hann og gerir hann ógæfusaman er það skipulag sem byggist á einkaeignarréttinum og heimildinni til að arðræna og kúga aðra menn". Þessi ummæli má vissulega heimfæra upp á þá afstöðu sem liggur að baki sögum Halldórs, enda þótt hann hefði áreiðanlega snúist öndverður gegn því að vera nefndur í sömu andrá og Maxim Gorkij. En sögur Hall- 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.