Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Side 38

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Side 38
Tímarit Máls og menningar sé að allir þessir íslendingar skuli farnir að skrifa leikrit. Það væri ranglátt að setja allt leikhúsfólk undir einn hatt og yfirleitt sýnist mér forráða- og listamenn Þjóðleikhússins hafa farið sér hægar í þessum efnum en starfs- bræður þeirra hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Eg hef sterkan grun um að goð- sögnin um blóma íslenskrar leikritunar sé að mestu leyti runnin upp þar á Tjarnarbakkanum og að á bak við hana leynist ákveðnir hagsmunir sem ekki sé beinlínis hægt að telja listræns eðlis. Að sjálfsögðu verð ég að slá hér aftur þann varnagla sem ég sló í sambandi við textana; nær engar tilraunir hafa verið gerðar til að rannsaka rekstur leikhúsanna og heildar- stefnu þeirra á seinni árum. En eins og áður held ég ekki að við megum láta þetta ástand fæla okkur frá því að varpa fram tilgátum, sem við getum beitt á rannsóknarefnið í heild og síðar endurskoðað í ljósi aukinnar þekk- ingar. Það er í Iðnó sem bylgjan tekur að rísa á síðasta áratug. Þar eru leikrit Jökuls sýnd og þar hlýtur Dúfnaveislan einnig ágætar viðtökur, ekki síst vegna ógleymanlegrar túlkunar Þorsteins O. Stephensens á pressaranum. Laxness hefur að vísu ekki skrifað fleiri leikrit síðan, en Leikfélagsmenn fylgdu eftir vinsældum hans með leikgerðum á nokkrum skáldsagnanna. Um svipað leyti fer Jónas Arnason einnig í gang og ná sumir þeirra þjóð- legu gamanleikja, sem hann semur á næstu árum, miklum vinsældum. Síðar koma svo Birgir Sigurðsson og Kjartan Ragnarsson til sögunnar. Eins og fram hefur komið virðist mér að listrænn árangur þessarar þróunar gæti verið markverðari en raun hefur orðið á. En lítið leikhús þarf að hyggja að fleiru en listrænum árangri. Leikhús er kostnaðarsamt fyrirtæki, og þó að það fái opinbera styrki tryggja þeir einir ekki fjárhagslega afkomu þess, a. m. k. ekki hér á landi. Leikhúsin verða því að gæta þess að fjöldi viðskiptavina, þeirra sem vilja kaupa þá vöru sem leikhúsið hefur á boðstólum, hrapi ekki niður úr öllu valdi og í verkefnavali sínu og vinnubrögðum hljóta þau því ævinlega að taka nokkurt mið af þörfum og kröfum neytenda. Opinberar fjárveitingar koma vissulega í veg fyrir að leikhúsin verði algerlega ofurseld duttlungum markaðarins og geti alls ekki tekið á sig þá áhættu sem fylgir listrænni tilraunastarfsemi sem ekki höfðar til þorra fólks. En þessar greiðslur eru ekki hærri en svo að leikhúsin verða að taka verulegt tillit til ríkjandi smekks, eigi ekki að reka þau með því meiri halla. Það er því hætt við að þau verði að vega salt á milli sölumennsku og listrænnar og félagslegrar framsækni. En það þarf ekki mikið til að glata jafnvæginu, og geri forystu- 28
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.