Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Page 77
Dymbtlvaka, skáldið í vitanum Hér að framan sáum við hve erfitt er að kveða á um hvort umhverfi kvæðisins í rúmi og tíma eigi sér stað í hugskoti skáldsins eða hvort vett- vangur þess sé í raun hið ytra: Þetta sama vandamál, hvað sé „raunverulegt“ og hvað ekki, blasir einnig við þegar athuguð er notkun fyrstu, annarrar og þriðju persónu fornafnsins í eintölu. Er skáldið í raun og veru að tala við einhvern annan eða um einhvern annan? Hér getur svarið líka orðið á annan hvorn veginn eða báða. Þá má sjá gestinn í I. hluta sem hluta raunverulegs umhverfis, einnig má líta á samtalið sem viðtal tveggja eðlisþátta í huga skáldsins sjálfs. Sama vandamál blasir við þegar fjallað er um kvæðið í heild. Er meg- inefni þess hugsunar- og vitundarlíf skáldsins eða fjallar það um atburði samtímans, um átök afla í umheiminum? Enn vil ég halda því fram að ákvörðun þessa skipti ekki máli. Ekkert er því til fyrirstöðu að lesandi aðhyllist báðar skoðanirnar (eða aðra, eða hvoruga) og ekkert er það í kvæðinu sem ýtir undir það að ein sé tekin fram yfir. Þetta kvæði er þess eðlis að það getur kallað alls kyns fyrirbæri fram í hugann án þess að vera nokkurt þeirra. Kvæðið merkir aðeins það sem það er, en einmitt af þeirri ástæðu geta hugrenningatengslin, sem það vekur, verið hin margvíslegustu. Aíeð öllum þessum fyrirvörum má lýsa kvæðinu þannig að það sé ferð um hugskot skáldsins á tíma ákafrar innri barátm og sjálfskönnunar, í baksýn sé landslag íslenskrar sjávarstrandar og í fjarlægara bakgrunni síðari heimsstyrjöld og átökin í upphafi kalda stríðsins. Eftir að hafa þannig slegið margfalda varnagla langar mig að athuga kvæðið nokkuð nákvæmlega, línu eftir línu, til að sjá hvernig það er byggt upp. Heitið er nokkurrar umhugsunar vert. Dymbilvaka er nýsmíði (þjóðsagan segir að Steinn Steinarr hafi fundið upp orðið handa Hannesi), en það bendir til dymbilviku, píslarvikunnar, viku hinna dumbu kólfa. Hug- mynd vökunnar er grundvallaratriði í kvæðinu og deyfður klukknahljómur gefur tóninn að mestum hluta þess. Einnig eru hér tengsl við málshátt- inn: „líður að dymbildögum“, dagur dómsins er nærri. Arstími dymbil- vikunnar getur ennfremur átt við kvæðið. Fyrsti hlutinn er að mestu leyti ein nætursýn enda þótt síðustu línurnar bendi til þess að nokkur tími hafi liðið. Hugblærinn er mókandi, háttur reglulegur, rím ótæpilega notað. Fyrstu þrettán línurnar eru mjög laustengdar. Hvert erindi færir 67
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.