Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Blaðsíða 37
Hreyfing medal farandverkafólks
áratugum. Ekki síst vegna þess að umræða og deilur um skipulagsmál innan
hópsins stóðu i tvo mánuði áður en honum tókst að sameinast um þau
fátæklegu lög sem fylgja með í þessu hefti. Athyglisvert er að bera þessa þróun
saman við þær tilraunir sem gerðar hafa verið til að stofna baráttuhreyfingar
meðal verkafólks, s. s. Baráttusamtök launafólks og tilraunir til að gera Rauða
verkalýðseiningu að slíkum samtökum á sínum tíma, þær tilraunir hófust á
deilum og rifrildi um skipulagsform og stefnumið, og svo hélt fram þar til
enginn nennti lengur að rífast og tilraunin lognaðist út af án þess nokkur
verkamaður eða kona hefði frétt af því að slík tilraun stæði yfir.
Stofnun félags farandverkafólks í Danmörku og tilraunir til að koma á
samtökum meðal íslensks farandverkafólks í öðrum löndum og hugmyndir
hópsins um fjölþjóðlegt samstarf farandverkafólks og innfiytjenda, sem víða
sæta nú vaxandi andspyrnu og kúgun vegna aukins atvinnuleysis og dýpkandi
kreppu í þróuðu auðvaldslöndunum, verða einnig settar fram. Staða kröfu-
gerðar farandverkafólks í dag er e. t. v. raunsannasti mælikvarðinn á árangur af
starfi þessarar hreyfingar, en stöðu krafnanna verður að bera saman við aðrar þær
kröfur sem verkalýðshreyfingin hefur fyrir nokkuð löngu sett fram og hvað
þeim hefur miðað. Er skemmst frá því að segja, að þær kröfur sem verkalýðs-
hreyfingin hefur sett fram fyrir hönd farandverkafólks standa alveg óbreyttar,
þeim hefur ekkert þokað frekar en öðrum kröfum verkalýðshreyfingarinnar.
Hins vegar hefur nú þegar náðst örlítill árangur í gegnum starf þeirrar nefndar
sem skipuð var af félags- og heilbrigðismálaráðherra á sínum tíma og hefur það
verkefni að kanna kjör og aðbúnað farandverkafólks, þar með talið erlent
farandverkafólk, og gera tillögur til úrbóta. Má því þegar fullyrða að þeir félagar,
sem með ríkisstjórnaraðild Alþýðubandalagsins fengu yfirstjórn félags- og heil-
brigðismála í sínar hendur, hafi með aðstöðu sinni unnið farandverkafólki nokk-
urt gagn, þó skoðanir séu skiptar innan hópsins um hvort ríkisstjórnaraðild
Alþýðubandalagsins hafi heillavænleg áhrif á baráttu verkalýðsstéttarinnar í
heild. I þeirri nefnd var reglugerð um verbúðahúsnæði rædd á fyrstu fundunum,
en aðeins á almennum grundvelli, og áður en sú umræða nálgaðist ákveðin
atriði var samþykkt í nefndinni að gera ýtarlega úttekt á öllu verbúðahúsnæði
sem til er í landinu. Hefur fulltrúi frá Heilbrigðiseftirlitinu unnið að þessu
verkefni, og fullvíst má telja að þessar upplýsingar, sem unnar eru mjög
rækilega, munu verða vopn í höndum farandverkafólksins í framtíðinni, þar
sem þær gefa möguleika á beinum tillögum um ákveðnar breytingar á ver-
búðahúsnæði á einstökum stöðum og umræðum og samvinnu við verkalýðs-
félög þar um þessi mál.
163