Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 14

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 14
Þórður Hjartarson í landlegu Þegar við vorum búnir að ganga frá bátnum eftir fyrsta túrinn kom upp vandamálið hvað við ættum að gera við tímann um kvöldið. Það var eitthvað grútleiðinlegt í sjónvarpinu, það höfðaði að minnsta kosti ekki til okkar táninganna. Vignir, sem þekkti þetta allt saman betur en ég, sagði: „Komdu upp í sjoppu og fáum okkur pulsu.“ Eg var ekkert svangur en til að geta eitthvað gert við tímann sam- þykkti ég það strax. Við örkuðum því upp í bæ. Þar var ekkert um að vera, bókstaflega ekki neitt sem gat drepið tímann hjá sautján ára töffurum. Það voru fáir á ferli, enginn á fylleríi, engin biljardstofa né spilakassar, ekkert bíó, engin mótorhjól né bensínþyrstir drekar. Það var tekið strikið beint að einu félagsmiðstöð bæjarins, sem opin var fyrir aðkomumenn, þ. e. Kaupfélagssjoppunni. Þetta var nýleg bygging, troðfull af gallabuxnatöffurum undir tvítugt. Ég sá það strax að þeir voru flestir ungir sjómenn sem voru allir í vandræðum með að eyða tímanum. Viggi splæsti og á meðan hann var að bíða eftir afgreiðslu gafst mér gott næði til að virða strákana fyrir mér. Þeir voru allir stæltir og útiteknir. Þeir stóðu saman tveir eða þrír í hóp. Einu samskiptin milli hópanna voru aflatölur, annars ræddu hóparnir sín mál og skiptu sér ekkert af hinum hópunum. Eg komst að því seinna að þessir litlu hópar voru menn af sömu áhöfninni. Það er nefnilega svo skrýtið, sérstaklega ef um sjómenn á svipuðum aldri er að ræða, að í landi heldur áhöfnin alltaf hópinn eins og frekast er kostur. Þeir geta rifist um borð, argað hver á annan og látið meiðyrðin ganga allan daginn, en í landi standa þeir saman og halda hópinn. Þetta atferli minnir helst á hegðun brúkunarhrossa sem eru í eigu sama bóndans. Þegar bóndi fer ríðandi á einhver mannamót, göngur eða réttir og sleppir klárum sínum lausum í girðingu hjá ókunnum hrossum þá halda hestarnir frá hverjum bæ hópinn og híma oftast tveir eða þrír í 140
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.