Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Blaðsíða 51

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Blaðsíða 51
Verbúðalíf fyrir stríð Viðtal við Olafíu Þórðardóttur í Sandgerði Ólafía Þórðardóttir cr fædd vestur á Barðaströnd 1906. Hún fór 19 ára gömul að heiman, fyrst til Tálknafjarðar, síðan til Stykkishólms og Reykjavíkur og var vinnustúlka á heimilum um árabil. Um þrítugt gerðist hún ráðskona við bát i Sandgerði, vann við það í nokkur ár, en giftist siðan og stofnaði þar heimili og vann reyndar jafnframt úti lengst af. A sildarárunum saltaði hún nokkur sumur fyrir sunnan og austan. Sem vinnukona, verbúðaráðskona og söltunarstúlka hefur Ólafia þvi reynslu af aðbúnaði og helstu störfum farandverkafólks á þessari öld. Við hittum Ólafiu í mötuneyti Miðness hf. þar sem hún er nú matráðskona. Við gripum niður í samtali okkar þar sem hún segir frá aðdraganda þess að hún gerðist ráðskona í verbúðum og frá kjörum og aðbúnaði við þau störf. — Vinkona mín, sem ég fór oft til þegar ég átti frí, þekkti mann sem hafði verið hér suður með sjó og vissi um skipstjóra sem mundi vanta ráðskonu. Og ég þurfti að fá hærra kaup en ég hafði, og ég bað hana að hlera eftir þessu. Svo kemur þessi vinkona mín til mín og segir mér að þeir séu búnir að fá ráðskonu og það geti ekkert orðið af þessu. Ég var þá hjá Pétri Guðmundssyni í Málar- anum. Eg var ekki fastráðin þar en ákveðin að vera þangað til mér byðist eitthvað sem væri betur launað. Svo einn daginn er hringt í mig og þá er ég spurð að því hvort ég geti komið strax, þeir séu búnir að missa ráðskonuna. Þeim hafi ekki líkað við hana og hún sé farin. Báturinn hét Egill Skallagrímsson, og Guðni Jónsson hét skipstjórinn. Ég varð náttúrlega voða spennt, og hálf- kvíðin samt, og svo þurfti maður að stynja þessu upp við húsmóðurina sem var óskaplega góð kona, Halldóra Samúelsdóttir. Styn þessu nú upp, að ég verði nú að fara, að ég telji mig ekki vera að svíkja þau neitt, en ég fái þarna hærri laun og þurfi á því að halda. Hún var nú ósköp leið yfir þessu. Svo kemur þessi góði skipstjóri. Ég man það eins og það væri núna að ég var að þvo þvott niðri í kjallara og veit ekki íyrri til en þessi maður stendur inni á gólfi og segir: „Geturðu komið strax?“ Alveg umbúðalaust. Mér vafðist tunga um tönn og bað um umhugsunarfrest, en það varð úr að ég fór hingað tveimur dögum síðar með rútu. Þetta var um vetur, 20. febrúar, og ég óð snjóinn upp að ökla alveg inn að dyrunum þar sem ég átti að búa. Það var hér uppi á Salthúslofti 173 L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.