Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Qupperneq 33

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Qupperneq 33
Hreyfing meðal farandverkafólks Er þetta talandi dæmi um samskipti Baráttuhópsins við Alþýðusamband ís- lands. Þegar hér var komið sögu var hópurinn orðinn alvarlega uggandi um að verkalýðshreyfingin hygðist sleppa því að taka upp kröfur farandverkafólks í komandi samningum því að á kjaramálaráðstefnu VMSI var ekki minnst á málefni farandverkafólks einu orði. Lagði því hópurinn mikla áherslu á að safna fólki saman, eins og ráðgert hafði verið, fyrir utan kjaramálaráðstefnu ASÍ sem haldin var viku seinna. Mætti hópurinn þar með kröfur á borðum, dreiflrit og kvikmyndavélar, en kvikmyndun þeirrar starfsemi sem farið hefur fram á vegum þessa hóps hefur verið sinnt nokkuð reglulega og vonandi leiðir það til góðrar heimildamyndar um starfsemi hópsins. Svo fór á kjaramálaráðstefnu ASÍ að kröfum farandverkafólks var hnýtt aftast á kröfulista Alþýðusambandsins með fáum orðum, en það spurðist út að forseti Alþýðusambandsins hefði talað fýrir þeim þar inni með þeim orðum að hvað sem mætti um afstöðu þessa Baráttuhóps til verkalýðsforystunnar segja þá væri ljóst að farandverkafólk væri mjög afskipt og fýrir það yrði eitthvað að gera. Þær kröfur sem Alþýðusambandið tók upp voru þær að sett verði upp sérstök reglugerð um verbúðarhúsnæði; í stað fulls fæðis var krafist að sett yrði hámarksverð á fæði og samið um greiðslu ferðakostnaðar í stað frís ferðakostn- aðar. Einnig var krafist rammasamnings um kjör farandverkafólks í landbúnaði, en sú krafa bættist við á fundinum í Félagsstofnun. Þar mætti farandverkafólk sem starfað hafði í landbúnaði og lýsti með dæmum nauðsyn slíks samnings. Á þær kröfur farandverkafólks sem að verkalýðsforystunni sneru var ekki minnst einu orði. Skipulagt starf hefst Eftir að hópurinn komst í skrifstofuhúsnæði efldist starfsemi hans til muna. Unnar voru upp spjaldskrár og skipuleg gagnasöfnun hafin. Eitt fyrsta verk hópsins var að skrifa öllum almennu verkalýðsfélögunum bréf, en þau eru milli 40 og 50 að tölu. Með þessu bréfi sendi hópurinn kröfurnar á íslensku og ensku auk skýrsluforms fýrir lýsingu á verbúðahúsnæði sem hópurinn hafði látið gera. Voru málefni farandverkafólks lauslega reifuð í bréfi þessu og starfsemi hópsins kynnt. Verkalýðsfélögin voru sérstaklega beðin um að taka þessi mál til umræðu á fundum sínum og upplýsa hópinn um þau sjónarmið sem þar kæmu fram. Auk þess voru félögin beðin að lýsa undangengnum samskiptum sínum við farandverkafólk, veita upplýsingar um fjölda þess á viðkomandi félagssvæði og í 159
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.