Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Side 25

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Side 25
Andstxbingar í öryggisleit Spurning um lífsviðhorf Andóf, sem byggir á þessum meginþáttum er hernaðarsinnum lítið fagnaðarerindi og hefur raunar aldrei verið. Kirkjan er ekki fædd í gær, saga hennar sýnir, að til eru markalínur, sem kristinn maður lætur ekki leiða sig yfir. Þótt lútherska kirkjan hafi stundum þótt heldur fylgispök við ríkis- valdið hefur hún þó engu að síður sýnt, að hún tekur mark á orðunum „framar ber að hlýða Guði en mönnum“. Þess vegna geta einhliða aðgerðir verið í fullu gildi engu síður en tvíhliða. Og afstaðan til kjarnorkuvopna mótast einkum á grundvelli lífsviðhorfs en ekki af því hvað óvinurinn gerir í málinu. Sama gildir raunar um aðra þætti þessa máls. I ályktunum kirkju- leiðtoga og kirkjusamtaka má sjá hvatningar til hervelda að íhuga ábyrg skref til að fækka kjarnorkuvopnum sínum, jafnvel einhliða, ef þannig mætti rjúfa vítahring vígbúnaðarkapphlaupsins. Stjórnmál eru stjórnmál. Svipað má segja um önnur svið mannlegrar tilveru. Að lútherskum skilningi er oft talað um „eigin leikreglur“ þessara sviða og inn á þau eigi hið „andlega vald“ takmarkað erindi. En þetta gildir aðeins að vissu marki. Sagan er því til vitnis. Saga Lúthersku játningarkirkj- unnar í Þýzkalandi á tímum Hitlers sýnir, að þar tókust á tvenns konar viðhorf til lífsins, annars vegar kristin trú en hins vegar nútíma heiðin- dómur. Þess má einnig geta, að Hitler barðist gegn sterkri friðarhreyfingu, sem komin var upp í Þýzkalandi og tókst snemma á valdaferli sínum að gera hana að engu. I þeirri afstöðu var hann í litlu frábrugðinn valdhöfum beggja vegna járntjalds á síðustu misserum, sem barizt hafa gegn friðarhreyfingum. Farvegir friðarins Spyrja mætti hvert gildi fjölmargra ályktana alþjóðlegra kirkjusamtaka og kirkjuþinga kunni að vera í umræðum um frið og afvopnun. Áður en því er svarað ber að hafa í huga, að slíkar samþykktir koma ekki „ofan frá“, frá kirkjuleiðtogum, heldur neðan frá, þær eru afrakstur af langri starfsemi kristinna kirkna að málefnum friðarins bæði innan einstakra safnaða, í sérstökum félagasamtökum eða í samtökum kirkjudeilda. Má hér minna á langt starf friðarráðs hollenzku kirkjunnar að málefnum friðar og mikla fræðslustarfsemi þess, m.a. má benda á bókina „Kirkjan og kjarnorkuvopn- in“, sem væntanleg er á íslenzku innan skamms. Gildi samþykkta og álitsgerða kirkna og alþjóðlegra kirkjusamtaka, sem oft eru mjög ítarlegar, er mikið. Þær eru hvetjandi fyrir margar kirkju- deildir. Og þá ber að hafa í huga, að kirkjan er alþjóðleg stofnun eða hreyfing þar sem verulegur hluti er austan járntjalds og í þriðja heiminum. Þar með má það ljóst vera, að kirkjan er farvegur þess boðskapar sem er 15
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.