Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Blaðsíða 50
Tímarit Máls og menningar
Ef það kemst í samband við loft klofnar það í örlitlar agnir sem maður getur
andað að sér. Þær setjast í lungun og valda lungnakrabba, nái þær að skaða
frumu. Helen Caldicott heldur því fram að hver einn og einasti íbúi á
norðurhveli jarðar hafi í sér ögn af plútoníum, frá þeim tíma er stórveldin
sprengdu í andrúmsloftinu. Plútoníum er skaðlegt í 500.000 ár. Ef maður
með plútoníum í líkamanum deyr og er brenndur berst efnið aftur út í
loftið. Það getur borist í annan einstakling og enn aðra og eitrað áfram út frá
sér í þúsundir ára. Hver kjarnakljúfur framleiðir 200—250 kg af plútoníum á
ári. Talið er að árið 2020 sitji Bandaríkjamenn uppi með 30.000 tonn af
efninu. Það þarf 5 kg til að framleiða kjarnorkusprengju svo að sjá má að þar
sem kjarnakljúfur er til, er teoretískt séð hægt að framleiða 40 sprengjur á
ári!
Þessar upplýsingar fylgja hér til að sýna hvílíkt brjálæði er á ferðinni.
Urgangurinn er mikill og eins og þegar hefur komið fram eru menn í
vandræðum með hann. Ef geislavirk efni komast inn í lífkeðjuna þarf ekki
að sökum að spyrja, afleiðingarnar geta orðið óhugnanlegar. Mannkynið
stendur frammi fyrir þeim vanda að þó að takist að tryggja varanlegan frið
og hefja afvopnun, bíður geysilegur vandi vegna þeirra geislavirku efna sem
þegar eru komin út í höf, vötn og jarðveg, eða geymd niðurgrafin. Helen
Caldicott segir að á næstu áratugum megi vænta krabbameins, hvítblæðis,
vansköpunar og fleiri sjúkdóma í svo stórum stíl að jafnist á við farsóttir.
Hvort einhver leið finnst til lækningar veit enginn, en hitt má vera ljóst að
það dugar ekki að banna kjarnorkuvopnin, það verður líka að banna kjarn-
orkuna og þann eiturefnaiðnað sem ógnar öllu lífi.
Þetta eru staðreyndir sem friðarsinnar, þar á meðal læknar reyna að
kynna fólki. Við verðum að vita hvaða afleiðingar kjarnorkan hefur til að
geta hafnað henni. Það segja margir að Helen Caldicott dragi upp allt of
svarta mynd, en það eru líka allt of margir sem skella skollaeyrum við,
vitandi að líklega verða þeir komnir undir græna torfu þegar kemur að
skuldaskilum. Að baki vopnaframleiðslunnar og kjarnorkuiðnaðarins eru
miklir peningahagsmunir, þar er stóriðnaður í húfi. Menn stundargróðans
víla ekki fyrir sér hvers kyns blekkingar og lygi, áróður og stríðsæsingar.
Því er haldið að almenningi að þó að nokkrar sprengjur féllu, þýddi það
ekki annað en nokkrar vikur í neðanjarðarbyrgjum. Helen Caldicott segir
slíkt helberar blekkingar, enginn muni lifa af þegar til lengdar lætur. Springi
öflug sprengja, eða fleiri en ein, mun úrfellið dreifast um alla jörðina. Vatn,
loft og jarðvegur mun mengast, landbúnaður verður úr sögunni í áraraðir og
þar með öll matvælaframleiðsla. Ozonlagið í háloftunum sem dreifir
geislum sólar mun eyðast að hluta til, sem þýðir að hvítur maður getur
aðeins verið úti í sól í örfáar mínútur áður en hann fær þriðju gráðu
40