Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Blaðsíða 114

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Blaðsíða 114
Tímant Mdls og menningar stefna þeirra er umfram allt að virða fjölbreytnina, séreðli hvers og eins, frelsisþrá — ekki síður í listsköpun en í t.d. „eldhúsi og svefnherbergi.“ DÞ gera fyrirvara umað nauðsynlegt sé að þekkja margvíslegar bók- menntir sem „heimild um veruleika okkar og hugsunarhátt" og lesa af skilningi (nánar um það síðar). En af fyrrgreindu viðhorfi þeirra leiðir samt að „við metum þau skrif umfram önnur sem sýna tengsl mannsins við það samfélag sem hann lifir í, samband einstaklings og fjölda, samband einkalífs og opinbers lífs. Þau skrif sem leita lausna á vanda söguhetja sinna í ljósi félagslegs veruleika þeirra í stað þess að lofa leiðir einstaklingslausnanna eru skrif að okkar skapi.“ (bls. 324) Lítum nú nánar á þær mismunandi leiðir sem sósíalistar hafa farið tilað „bókmenntirnar leggi baráttunni lið“. Að sjálfsögðu förum við þá oft útfyrir grein DÞ. Uppbyggilegar bókmenntir Stundum hefur skáldum verið boðað að sýna lesendum dásemdir sósíal- ískrar framtíðar. En frumkvöðlar marxismans vildu aðeins ræða um grund- vallaratriði hennar í greinum sínum. Því þarsem hugmyndir manna mótuð- ust af félagslegum veruleika þeirra, gætu þeir sem búa við auðvaldskerfi ekki gert sér glöggar hugmyndir um lífið í sósíalisma framtíðarinnar. Þær hugmyndir hlytu að verða afstraktar og æði litaðar af auðvaldsveruleik- anum. Hvernig ættu þá skáldin að bregða upp lifandi myndum af veruleika framtíðarinnar? Fari þau að sýna fyrirmyndarfólk, frjókorn sósíalískrar framtíðar í samtíma okkar, er hætt við að það fólk verði heldur loftkennt. Ennfremur gæfi það alranga mynd af samtíma okkar, alltof jákvreda, að reyna að telja fólki trú um að slíkt geti þrifist í henni. Þetta hafa nú flestir séð, og viljað halda sig við samtímann. Þá er að tala máli hinna undirokuðu, og jafnvel að vekja þá til baráttu. Eitt er að vilja örva undirokaða hópa til listsköpunar — eða einfaldlega tilað lýsa stöðu sinni — láta rödd þeirra heyrast, stuðla að aukinni sjálfsvit- und þeirra. Það hljóta allir sósíalistar að vilja. En oft er annað uppi, einsog sást á umræðunum um kvennamenningu í Þjóðviljanum í fyrrasumar, t.d. Þar hét það kvennamenning að annast börn, ræktun, matseld, fatagerð og önnur hefðbundin kvennastörf, en ekki t.d. stjórnsýsla, veiðar eða stjórn- mál. Það er „karlaheimur". Þetta er að afneita þeirri augljósu staðreynd, að í þessu sambandi er það sögttlega ákvarðað þjóðfélagshlutverk að vera kona. Talsmenn þessa viðhorfs ganga gegn því grundvallarsjónarmiði sósíalista, að hver einstaklingur er fyrst og fremst möguleikar, hann á að fá sem mest frelsi. Það sem einkennir undirokaðan hóp er þröngvað uppá hann af ríkjandi kerfi, og það er því sótsvart íhald að vegsama þá eiginleika — umfram aðra möguleika. 104
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.