Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Síða 26
Tímarit Máls og menningar
mannkyninu lífsnauðsynlegur. Boðskapurinn um frið er pólitískur boð-
skapur sem er þó þess eðlis, að hann stendur í eðli sínu utan við alla
flokkspólitík. Það sem gildir þegar málefni friðar og afvopnunar eru annars
vegar er vilji og álit almennings um allan heim. Afvopnunarráðstefnur hafa
engan árangur borið til þessa og gildir þá einu hvort þar er um að ræða
alþjóðlegar ráðstefnur eða (tvíhliða) viðræður risaveldanna. En hin mikla
þátttaka almennings í umræðum um frið og afvopnun undanfarin misseri
hefur þegar sýnt, að þar er á ferðinni sterkasta aflið. Þetta á einnig við um
kirkjur í löndum austan járntjalds, umræðan um frið og afvopnun, andóf
gegn hernaðarhyggju og kjarnorkuvopnum hefur náð fótfestu þar víða, ekki
hvað sízt í lúthersku kirkjunni í Austur-Þýzkalandi sem hefur lengi haldið
uppi andófi gegn hernaðarhyggju þar í landi, þrátt fyrir takmarkað
frjálsræði til starfa.
En farvegir friðarins eru fleiri en kirkjur þótt sérstaklega hafi verið getið
um þeirra framtak og þá sérstöku möguleika, sem kirkjur heimsins hafa. En
á það skal bent, að alþjóðleg kirkjusamtök hafa hvatt alla til þess að starfa
saman þegar málefni friðar og afvopnunar væru annars vegar: kristnir menn
og guðleysingjar, fólk af öllum trúarbrögðum, hægri menn og vinstri
o.s.frv. I þessu málefni gildir það fyrst og síðast, að friðurinn byrji heima,
að þeir sem um hann fjalli reyni að iðka sjálfir „uppeldi til friðar“ m.a. með
því að starfa með fólki sem hefur aðrar skoðanir en þeir sjálfir.
Leiðrétting
Meinleg villa slapp inn í umbrotna próförk að grein Hannesar Péturssonar í
síðasta hefti, Sjöföld en þó samein stjarna. í fyrstu vísunni í kvæði Gríms
Thomsens á bls. 517 stendur orðið sólkerfi í staðinn fyrir sólakerfi.
Ritstjórn biðst innilega afsökunar og fer þess vinsamlegast á leit við
áhugasama lesendur að þeir færi leiðréttinguna inn í eintak sitt af heftinu.
Rétt er vísan svona:
Öll að sjái sólakerfi,
svo er enginn maður skyggn;
stýrir hverju stjörnuhverfi
stærsta sól að birtu’ og tign.
16