Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Side 78

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Side 78
Tímarit Máls og menningar Annað óþægilegt misræmi er notkun íslenskra bókstafa sem ekki koma fyrir í ensku. Sérhljóðunum á, í, ó, ú, æ og ö er yfirleitt haldið, og er það vel, en þegar kemur að samhljóðunum Þ og ð er gripið til þess ráðs að nota í staðinn th og d, eins og verið sé að þýða eitthvert kínverskt eða kýrillískt letur. Við þetta verður Þórbergur Þórðarson að Thórbergur Thórdarson, Sigfús Daðason að Sigfús Dadason og Þorsteinn frá Hamri að Thorsteinn frá Hamri. Enn ankannalegra verður þetta þegar um er að ræða nöfn á bókum sem hafa þessa stafi í sér eða þegar vitnað er í íslensk orð. Þorpið eftir Jón úr Vör verður Thorpid, og Þjófur í paradís eftir Indriða heitir Thjófur í paradís. I einu viðtalanna fræðir viðmælandi erlenda lesendur á því að hann hafi þýtt „Gíslasaga and some Thættir“, og í öðru er verið að gera að einhverju sérstöku fyrirbrigði tilfinninguna „heimthrá"! íslenskir kvenrithöfundar og hókmenntir eftir konur A undanförnum árum hefur átt sér stað nokkur umræða um stöðu kvenna í íslenskum bókmenntum, þar sem margsinnis hefur verið á það bent, hversu afskiptar þær hafa jafnan verið hjá þeim sem um bókmenntir fjalla á opinberum vettvangi og bókmenntamati ráða í landinu. Svo virðist sem þessi umræða hafi gjörsamlega farið fram hjá ritstjórn Icelandic Writing Today. Það er ekki aðeins að tölfræðilegur hlutur íslenskra kvenrithöfunda í ritinu sé mun minni en efni standa til, og að það gefi því alranga mynd af bókmenntastarfsemi íslenskra kvenna í dag, heldur má þar einnig sjá ýmis viðhorf og jafnvel kenningar varðandi bókmenntir eftir konur sem byggjast meir á fordómum en þekkingu. Samkvæmt félagatali í nýlegu Fréttabréfi Rithöfundasambands Islands voru félagar í sambandinu árið 1982 alls 209. Þar af voru karlar 171, eða 81,8%, og konur 38, eða 18,2%. I Icelandic Writing Today eru alls kynntir 33 höfundar. Þar af eru 27 karlar og 6 konur, sem í fljótu bragði virðist ekki svo afleitt hlutfall. En svo undarleg vill til að tvær af þessum konum geta tæplega talist til íslenskra samtímahöfunda, þær Kristjana Gunnars, sem er fyrst og fremst kanadískur rithöfundur, og Ásta Sigurðardóttir, sem samdi frábærar smásögur sínar fyrir meir en tuttugu árum og er löngu látin. Er hún eini látni rithöfundurinn sem tekinn er með í ritið. Af konum sem eru að skrifa á íslensku í dag fá því aðeins 4 inni í þessu riti, þær Svava Jakobsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir og Nína Björk Arnadóttir. En þetta segir heldur ekki alla sögu. Að þeim Kristjönu Gunnars og Astu Sigurðardóttur frátöldum eiga alls 10 sagnahöfundar verk í ritinu, þar af eru 8 verk eftir karla, eða 80%, og 2 eftir konur, eða 20%. Verk eftir þessa höfunda eru samtals 11, þar af eru 9 eftir karla eða 81,8%, og 2 eftir konur, eða 18,2%. Ef athuguð er lengd V 68
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.