Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Síða 51
Nútímaskáldskapur í lausu máli
Helstu verk Brandao eru Pescadores (Sjómenn), llhas desconhecidas (Oþekktar
eyjar) og Prosas Barbaras (Villtur prósi).
Eftir útkomu þessara bóka hófst lífsþjáningin í verkum rithöfundarins og sið-
ferðisátök, þeim fylgdu árásir á borgarastéttina og kúgunarvald þjóðfélagsins,
einkum í verkinu O pobre de pedir (Bciningamaðurinn) sem kom út eftir dauða
hans 1933.
Verk hans einkennast af blíðri tilfinningu til manna, jafnvel þótt peningarnir hafi
afskræmt þá og kastað þeim út í vændi. Honum er þó sérlega hlýtt til kvenna og hins
ljóðræna heimilislífs. Oft nálgast verk hans það að vera ljóð í óbundnu máli, og eru
það jafnvel.
Það sem nýraunsæis-höfundar sáu í verkum hans var aðeins hið ljóta, eins og það
kallast, og vörpuðu honum út í ystu myrkur sem úrkynjuðum höfundi. Ein ástæðan
fyrir því var að hann gaf út afar nærgöngular Minningar, opnar og án þess að leyna
öðru en því sem mestu máli skiptir. En það gerir maðurinn alltaf, hann felur það eða
býr í grímubúning.
A síðari tímum hefur safn minninganna, Minningar frá 1919—25 —33, verið talið
stórt framlag til sálkönnunar. Kvenréttindahreyfingin hefur líka tekið Raul upp á
sína arma sem baráttumann fyrir ekki aðeins rétti konunnar heldur beri líka að skilja
hana í öllum sínum þversögnum, eins og aðrar lifandi verur, en ekki eins og hún væri
sprottin af kjörorði guðs eða pólitískra hreyfinga.
Onnur verk Brandao eru: Farsa (1903) eða Skrípaleikur, Os Pobres (1906) eða
Fátæklingarnir og leikhúsverkin O gebo e a sombra (Krypplingurinn og skugginn)
og O doido e a morte (Geðsjúklingurinn og dauðinn).
I sérhverju verki sínu stílfærir hann manninn til að auðga tjáningarmátt hans,
bendir á félagslega afskræmingu af ýmsum ástæðum, ekki aðeins vegna fjárskorts,
því ef bæklun mannsins, andleg eða líkamleg stafaði af fjárskorti einum og þjóðfé-
lagslegu óréttlæti þá er auðsætt að aðeins auðmenn væru vel gerðir á sál og líkama.
Svo er samt víst ekki.
Bókmenntafræðingar segja að verk hans séu mitt á milli angistarveins og könguló-
arvefs draumsins. Og þeir kunna að koma réttu orðunum að í flóknum málum.
521