Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 58
Tímarit Máls og menningar inn hafði þá ákveðið að senda riddarasveit Franceschis og deild Foys til virkisins í Chaves og gerði mér boð um að dvelja í Verim, þar ætlaði hann sér og herráðinu fastastað innan fjögurra daga. Málalokin leystu mig undan að þurfa að snúa aftur til hallarinnar, hennar gættu tuttugu varðliðar; ég svaf sjálfur sem steinn á hálmdyngju. En árla næsta morgun fór ég aftur til fundar við fangana mína. Engin merki sáust eftir blóðbaðið. Hermennirnir höfðu útbúið stalla fyrir hestana í kjallaranum. Morgunninn ljómaði. Hrossin drukku úr steinþrónni. Gangar voru þvegnir. Líkin horfin. Aðeins gluggahlerarnir og skáldaðir veggir eftir kúlur báru vitni hinum blóðuga bardaga. Ég spurði eftir föngunum. Varðstjórinn hafði neitað að nærast og stikaði eirðarlaus um þröngt herbergið. Eg lét sækja dótturina sem skildi og gat mælt á frönsku, að sögn liðþjálfans. Ég gerði henni skiljanlega nauðsyn þess að undirbúa komu herforingjans og bauð henni og dætrunum athafnafrelsi. Konan hlustaði kyrrlát, síðan kvað hún telpurnar vera bróðurdætur sínar, dætur ekkjumanns sem hafði látist af hnífstungu kvöldið áður. Með göfugu stolti sagði hún að gamalmennið, faðir hennar, gegndi engum skyldum nema við konung sinn, því hefði hann barist til síðustu stundar en leyfði göngu í bænahúsið til að biðja guð málsbótar á að sonur sinn og síðasti þjónninn væru fallnir og því óvígir í baráttunni fyrir fósturjörðina og bústað feðranna gegn óvinaliðinu. Ég endurtók kröfu um undirbúning vegna komu hershöfðingjans. Þá heimtaði hún að varðstjórinn fengi skilorðsbundið frelsi og bauð líf sitt í tryggingu. Eg gerði kaupin og þótti víst að gamalmennið yrði gefið fallöxinni við komu hershöfðingjans, að það að leika á hervörðinn og flótti væri óhugsandi. Gæsluvarðhaldinu var aflétt, ég treysti svardögum óvinarins, bjó um mig í húsinu og beið hershöfðingjans og sendi nákvæma skýrslu um atburðina. Hin sérkennilega kona var orðin átrún- aðargoð hermannanna eftir þrjá daga. Ahrif hennar innan héraðs voru sem lögboð, okkur bárust gjafir hvaðanæva að, hlöður fylltust af heyi, hænsnasægur gaggaði í húsagarðinum og hatur á innrásarhernum hvarf óðar en húsfreyjan í Verim hýsti frönsku hermennina. Dugnaður hinnar fölu konu var undraverður, hún leysti starf sitt svo ljúft af hendi að flestum virtist hún vilja má burt hina margföldu sekt fyrir mótspyrnuna. Hermennirnir kölluðu hana/ní kapítanl Tortryggni mín hvarf sem dögg fyrir sól. Og þótt hegðun konunnar virtist vera óskiljanleg leit ég næstum á hana sem franska konu eftir tvo daga. Hún hafði löghlýðið og kyrrlátt augnaráð. Ekkert í föla snerpulega andlitinu vottaði um fals. 528
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.