Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 84
Tímarit Máls og menningar Opnið! Við heyrum þrusk í Manolo og konunni. Aftur er barið, þrælslega, og tekin rödd Manolos svarar: Já, ég kem! Kveiktu ljós! er kallað að utan. Klórað er með eldspýtu og fjalirnar í þilinu milli okkar og Manolos koma í ljós. Dyrnar opnast: Upp með hendur! Glymjandi fótatak berst inn. Þjóðvarðliðarnir sjást ekki, en við finnum reiðiandblæ stafa af þeim. Ognin fyllir húskofann: Hvar er skammbyssan, haglabyssan? Eg á enga skammbyssu. . . Við heyrum að leitað er. Eflaust hafa þeir fundið byssuna: Með þessu á að drepa mann, ha? Eg hef aldrei drepið neinn, svarar Manolo hóglátur. Þetta er veiði- byssa. Löðrungur smellur, síðan heyrist þungt sverðshögg. Maðurinn minn gerði engum illt, herra vörður. . . I guðsbænum. . . Látt’ana þarna! heyrist sagt. Uti er kallað og varðliðarnir fara. Eg teygi höfuðið fram og lít gegnum gatið. Varðliðarnir fara yfir svæðið sem er autt og flýta sér að hreysi „Sexfingra“. Barið er með byssuskeftum á dyrnar. Enginn opnar og barið er áfram og hurðin brotin. Varðliði stígur fram og miðar hlaupinu inn. Skotinu er svarað með skammbyssu- og byssuskotum. Vörðurinn hikar, svignar örlítið aftur á bak, teygir út hendurnar, reynir að styðja sig en fellur þunglega á jörðina. Hinir varðliðarnir þyrpast inn á svæðið sem ég sé. Þeir eru ólmir yfir falli félaga síns og skjóta linnulaust á hreysið. Riffilskot þýtur út stöku sinnum, ef hlé verður á skothríðinni, og einhver skipar: Sláið hring um húsið svo enginn sleppi! Skothríðin er linnulaus og hríðskotabyssunum komið upp andspænis kofanum. Fyrirliðinn virðist vera uppi við vegginn á húsi Manolos, rödd hans berst greinilega til mín um opið: Best að senda einhvern svo þeir gefist upp. Síðan fá þeir að kenna á því. . . Aftur er barið að dyrum hjá Manolo, og hann heyrist segja hranaleg orð við konuna, síðan heyrist fótatak hans. Varðliðarnir ryðjast inn og draga Manolo út. 554
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.