Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 90
Tímarit Máls og menningar Nýtt skot. Sá sem hleypur nálgast. Eg þrýsti mér að veggnum, með mundaða skammbyssu og bíð. Engin lausn bíður mín. En fótatakið sem nálgast, þyngist, verður hægara og ég heyri stunu. Veran stendur í dyrunum og byrgir fyrir dagsbirtuna. Ég er að því kominn að skjóta þegar ég sé að þetta er Kristófer, kengboginn með hönd á kviðnum. Ur augnaráði hans skín uppgjöf við að sjá mig, þögull harmleikur, tak- markalaus hryggð. Slíkt hef ég aldrei séð í augum neins. Svo skjögrar hann dettur við fætur mér, útvaðandi í blóði. Eg lýt yfir hann en hætti þegar nýtt fótatak og hlaup nálgast. Kristófer hvíslar lágt: Flýðu. . . flýðu. . . Hik kemur á mig, en ég get ekki risið upp: samstaðan bindur okkur og einkennilegur svipur skín úr augum Kristófers. Fótatakið nálgast og fjarlægist síðan. Hlaupið er nú í öfuga átt. Eg lít aftur á Kristófer sem á stöðugt erfiðara um andardráttinn og stór blóðpollur rennur frá honum. Ljóminn þverr í augum hans, en þó vottar þar enn fyrir lífi. Kristófer! hrópa ég í örvæntingu. Hægri hönd hans fellur þreytuleg að vestisvasa og lykst um lítinn járnkross sem konan hefur gefið honum. Ur munni hans er hvíslað veikt: Segðu Rocío að ég hafi hugsað til hennar. . . og til barnanna. . . líka. . . Mig langar að gera eitthvað honum til bjargar en veit ekki hvað, og finn að allt er gagnslaust og orðið um seinan; hann er glataður. Orvænt- ing grípur mig. Augnaráð Kristófers verður stöðugt óljósara, ég þoli ekki að horfa lengur á hann, rís á fætur, halla mér að veggnum með lokuð augu. Höfuðið á mér er eins og steikt á glóð, brjóstið ætlar að springa en kokið lokast; ég skelf í hnjáliðunum. Ósjálfrátt græt ég. „Heimurinn verður annar í framtíðinni. . . Gjörbreyttur. . .“ Eg leita mér huggunar: „Kristófer barðist í þágu framtíðarinnar og dó svo heimurinn batnaði. . .“ Mér mistekst að hemja tilfinningarnar sem ólga í mér. Mér kemur Guzman í hug sem féll fyrir tveimur dögum, og ég sé mig aka í bílnum til að færa Kristófer fréttina, og hann færir nafn hins látna félaga á lista yfir þá sem hafa fallið fyrir málstað okkar. Eg færi mig frá veggnum. Augun í mér brenna, virðast stækka og þenja út augnatóftirnar. Þá lýt ég yfir Kristófer, teygi fram skjálfandi hendur og fálma. Fingurnir vökna í storknandi blóði og ég fálma og finn, læði inn hendinni og dreg fram bókarkorn úr innri jakkavasanum. Svo hristi ég hana eins og hún væri rykug. A bókina er skrifað með rauðu bleki „3. hefti“ og ég fletti og leita að fyrsta auða blaðinu: nöfn, 360
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.