Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Side 103

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Side 103
Jose Cardoso Pires Þjóðvegur númer 43 i Þegar komið er fram hjá Azinheira fer að verða strjálbýlt. Engar krár, smábýlin hverfa smám saman og hinn tötralegi strákavaður og vegurinn teygist flatneskjulegur gegnum sveitina áþekkur gleraugnaslöngu sem dottar í heitu sólskini sumarsins. Þá er það að fyrstu sumarhitarnir byrja að þurrka upp votlendissvæð- in í suðri. Leirinn sekkur til botns og fúnandi hálmstrá horfa upp úr dauðum forarpyttum. Skelfingu lostnir horfa froskarnir í fenjunum á hvernig vatnið fer hægt þverrandi, og að lokum springa þeir uppbelgdir í sólinni með skrælnaðan skrápinn. Auðnirnar sviðna með þessum hætti í miskunnarlausum sólarhitan- um. Jörðin springur, hér og þar með háu snarki, skorpnar, og sefbrúskar veifa leirugum stráum líkum fánum. Pollarnir andvarpa í síðasta sinn, og eftir það fyllist loftið af mýflugnamekki sem flækist um sléttuna. Þjóðvegurinn númer 43 liggur yfir þetta eyðilega landsvæði. Vegurinn er nakinn og sléttur, og aðeins stöku sinnum er tómleiki landslagsins rofinn af gömlu húsi fullu af rottum. Smalar eða ferðamenn rekast aðeins stöku sinnum á stakt tré þar sem hægt er að hvíla sig. Um leið og hitarnir hefjast fer fram nauðsynleg viðgerð á veginum. Viðvörunarskilti er sett upp á ákveðnum stað: Varúd Viðgerð Há- markshraði 10 km — og skammt undan er verkamannahópur væddur hökum og skóflum að burðast með möl og að strá sandi eða fylla upp holur með asfalti. Aðrir húka yfir kötlunum þar sem bikið vellur, sumir fylgja þjöppunni, en allir eru að kafna í reykjarmekki og kæfandi stál- bikspest. Stöku sinnum fer þarna um flutningabíll. Hann ekur í gufumekki áþekkari lest en flutningabíl, og hann ryður frá sér hillingaskýjunum sem titra fyrir ofan veginn. Bílstjórinn á það til að nema staðar og biðja um vatn á kælinn og drekkur sjálfur sopa og heldur síðan sína leið. Varúð Viðgerðir Hámarkshraði 10 km. Vegarskiltið færist stöðugt fram á við. 573
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.