Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Síða 105
Þjódvegur númer 43
Hann skrúfaði frá tjörukrananum, sneri varlega tvo hringi svo bráðið
sullaðist ekki til beggja hliða.
Nægði þetta ekki til að gera hvern mann vitlausan?
Hann leit til félaga síns líkt og hann leitaði eftir svari, samþykki.
Veistu, ég hélt jafnvel hún væri dáin og því væri leynt fyrir mér, eða að
barnið hefði fæðst bæklað, hélt hann áfram og hafði ekki augun af mjóu
andliti kyndarans og tóma auganu.
Augað, hin dauða hola, bliknaði ekki vitund, en engu að síður fylgdist
hann vel með andliti kyndarans og svip. Andlit hans var einhvern veginn
áhugalaust sökum augans, dálítið ellilegt og sannarlega háðskt.
Kyndarinn hlustaði og hélt um handlegginn þar sem moskítóflugan
stakk hann, uns að því kom að honum þótti sér einnig skylt að segja frá
sínum högum:
Vinur minn, oft leggur maður sig í hræðilega áhættu vegna örlítils
gamans, hóf hann söguna; hættur sem enginn kann að meta. Og þær
hentu tengdadóttur mína þegar hún eignaðist fyrsta barnið. Eitt sinn
kom stúlkan frá brunninum og henni skrikaði fótur eða eitthvað slíkt og
búmm. En hún varðist falli og á hana kom þvílíkur slynkur að barnið
hrökk að brjósti hennar, næstum að hjartastað.
Kyndarinn hélt áfram að huga að handleggnum þótt hann segði frá
tengdadóttur sinni og handlangarinn stæði fyrir framan hann og drykki í
sig hvert orð.
Jæja, vinur, enginn getur ímyndað sér hvað læknirinn átti í miklum
brösum við að koma öllu aftur í lag. Oþarft er auðvitað að geta allra
kvalanna sem stúlkan þoldi. Þær voru fyrir hana þvílík ósköp. Heyrðu,
sérðu hérna vilsuna?
Manúel Pinto skoðaði vilsuna en þagði. Hin fatan var orðin full af
malbiki og hann bjóst til að fara.
Þeir hafa rétt fyrir sér þarna í Algarve, hélt kyndarinn áfram. Ófrísk á
konan alltaf í brösum, hafa þeir að orðtæki. Það er ekki svo vitlaust hjá
þeim.
Kyndarinn lauk máli sínu, en hélt síðan áfram þótt hinn væri farinn:
Auðvitað á þetta við kvenfólkið í Algarve. En það skellir sér samt
fljótt í rúmið. . .
Malarhaugar voru fram með veginum og kaggar og tunnur í röð.
Manúel Pinto fór oft fram hjá röðunum og gaf þeim engan gaum,
kengboginn við fötuburðinn.
Hitinn frá slitlaginu gaf til kynna hvað langt var að úðunarvélinni og
575