Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 109
Þjódvegur númer 43
Verkfæravörðurinn leit upp og horfði á hann en sagði ekkert. Hann leit
bara upp og horfði.
Augnaráð hans var verkamanninum álíka og dómur sem ekki verður
áfrýjað. Varnarlaus beið hann eftir aðstoðarmanni sínum sem nálgaðist
hægt og varlega með föturnar sneisafullar. Hann rétti armana út frá sér
og varaðist að föturnar lemdust í fætur hans, og þetta jók honum
auðvitað erfiðið um allan helming.
Farðu, skipaði verkfæravörðurinn þegar hinn kom.
Manúel Pinto greip bikföturnar og fór leið sína. Verkfæravörðurinn
hélt áfram að sníða tappann.
Hann hélt áfram að tálga, og þegar Manúel Pinto kom aftur í næstu
ferð þá kepptist hann við hið nákvæma og fullkomna verk.
Heyrðu, laumaðist út úr Manúel Pinto. Er þetta með Spottann alveg
víst?
Verkstjórinn staðhæfði það við mig, svaraði hinn.
Alves lagði hnífinn frá sér og drap skyndilega moskítóflugu sem
settist á hálsinn á honum og spurði:
Neitið þér að fara?
Það er óhjákvæmilegt, konan veik. Eg veit ekki hvort hún er lífs eða
liðin.
Verkfæravörðurinn fór aftur að tálga tappann. Hann velti málinu fyrir
sér.
Fékk Marcelo engar fréttir? spurði hann eftir dálitla stund.
Eitthvert verkfæri féll um koll með hávaða rétt hjá þeim, verkamaður
hljóp á spretti niður veginn í átt að stóra katlinum. Löng hróp heyrðust
og hvernig klórum var kastað á jörðina hverri af annarri. Menn komu
hlaupandi úr öllum áttum.
Manúel Pinto vissi ekki fyrr til en hann dróst með fjöldanum. Hann
ruddist áfram, komst að stóra katlinum, teygði fram hálsinn og gáði. A
svæðinu fyrir framan eldhólfið stóðu kyndarinn og handlangari vörð um
mann sem lá á hnjánum. Maðurinn skókst til. Hann lá með höfuðið í
keng milli hnjánna og sveiflaði til mönnunum sem héldu honum,
einkum kyndaranum.
Hver er þetta? spurðu verkamennirnir í hópnum.
Kyndarinn leit tómlegur í augunum til þeirra og skókst til við
krampakennd flog mannsins sem hann reyndi að halda föstum. Kyndar-
inn var áþekkur drukknum manni sem reynir að halda niðri kjökri, eða
sem fuglahræða í vindi, hattlaus, úfinhærður og hálsinn langur og
579