Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 120

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 120
Umsagnir um bækur PEGASUS BLAKAR VÆNGJUM í REYKVÍSKUM PAKRENNUM Einar Már Guðmundsson: V'angjaslátt- ur í þakrennum. Almenna bókafélagið. Reykjavík 1983. 190 bls. Riddarar hringstigans (1982) voru skemmtileg hugsmíð og vönduð og sýndu næg merki þess að Einar Már Guðmundsson væri efni í hagleiksmann á sviði sagnagerðar. Þetta staðfestir hann með annarri skáldsögu sinni. Margt er þar gert með öðrum hætti en í fyrri bókinni, en þó bera báðar merki sama handbragðs. Vxngjasláttur í þakrennum er saga um sköpun og tortímingu. Skírskotanir til kristilegrar og gyðinglegrar goða- fræði eru augljósar, enda nærtækar í menningu okkar, en þó er andi bókar- innar að ýmsu leyti nær öðrum trúar- brögðum, jafnvel Ásatrú; fremur virðist um að ræða sköpun og tortímingu sem skiptast á í endalausri hringrás en heimsdrama með ákveðnu upphafi og endi. Helsti fulltrúi sköpunaraflsins í Vængjaslætti er Anton rakari Sigfinns- son, sem skapar nýjan heim I hverfinu sínu þegar lítið er að gera á rakarastof- unni, heim dúfnaræktar og dúfnaversl- unar sem á sín hof þar sem dúfnakofarn- ir eru. Tortímingaröfl úr ýmsum áttum stríða gegn þessum heimi og fara með sigur af hólmi að lokum, en sá sigur er ekki alger. Aðrar sögur af sköpun og tortímingu láta á sér kræla: í upphafi greinir frá sköpunarmætti sem fær útrás við að teika strætisvagna, en sá draumur er búinn þegar borgarstjórinn lætur skipta um vagna; bróðir sögumanns eignast segulband og kostir þcss eru hvergi nærri fullnýttir í sögunni og fyrir- sjáanlegt er að það geti tengst nýrri bylt- ingu sem er rétt farin af stað þegar sögu lýkur. Og þótt dúfum sé útrýmt úr hverfinu lifa þær áfram sem goðsögn í textanum. Margar af persónum bókarinnar eru goðsögulegar að eðli, að einhverju eða öllu leyti. Þar má nefna til Anton rakara og þó einkum Didda dúfnakóng. Þótt þeim takist ásamt Jóa og Ola og vinum þeirra að hrinda árásum hins íslensk- ameríska demóns, Fedda feita, og ára hans úr Djúpunum, lúta þeir að lokum í lægra haldi fyrir samstilltum kröftum húsmæðra og borgaryfirvalda, sem nálg- ast að vera fulltrúar örlaganna í heimi stráka. En þeir hafa ekki tortímst sjálfir og þremillinn má vita hverju þeir eða þeirra nótar eiga eftir að taka upp á. Goðsagnaveröld dúfnamanna rennur ómerkjanlega saman við þann mann- heim þar sem Jóhann Pétursson, sögu- maður í Riddurum hringstigans, nú orð- inn fáum árum eldri, lifir og hrærist ásamt Tryggva bróður og Óla vini og vopnabróður. Þessir piltar stjórnast sem fyrr af lífsnautninni, en mega sín lítils gegn valdi samfélagsins: foreldrum, búð- areigendum, barnaverndarnefnd og lög- reglu. Þeir geta leikið á þetta vald og skapað sér dálítið svigrúm en þeir geta ekki sigrast á því á sama hátt og Diddi dúfnakóngur sigrar náttúrulögmálin eða Jón sem hæðist að lögmálum samfélags og náttúru með því að sitja uppi á síma- staurum. 590
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.