Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Page 64
Tímarit Máls og menningar dró úr fólksfjölguninni á ný. Takmarkanir á öreigagiftingum voru því, að mínu áliti, tilraun til að koma á sjálfvirkri stjórnun fólksfjöldans, eða eins konar aHto-regulation, sem franski sagnfræðingurinn Jacques Dupáquier hefur talið eitt megineinkenni fólksfjöldasögu Frakklands á fyrri tíð.14 Breytingin á afstöðu þingmanna í öreigagiftingamálinu þarf ekki að bera vott um afturhvarf frá frjálslyndi til íhaldsstefnu. Frekar var hér um að ræða breyttar aðstæður sem kölluðu á ný viðbrögð. Ef kannaðar eru umræður þingmanna um lausn á þeim vanda sem við blasti árið 1859 er erfitt að ímynda sér að þar tali menn sem skömmu fyrr hafi verið snortnir af frjálslyndum hugmyndum. I stað þess að láta markað- inn um að finna jafnvægi fólksfjöldans þá átti að auka höftin. Okkur hefði sennilega fundist nær að vinna að sköpun nýrra atvinnutækifæra en banna giftingar, sérstaklega þar sem fiskveiðarnar buðu upp á feikilega möguleika sem lítt voru nýttir á þessum tíma. En rangt væri þó að telja alþingismenn alls ósnortna af frelsisanda sinnar tíðar. Þingmönnum var mjög tíðrætt um eigin frelsisást og þá trú sína að frelsi væri undirstaða framfara „ ... ég álít“, sagði Guðmundur Brandsson, bóndi í Landakoti, á þjóðfundi „öll bönd á eðlilegu frelsi manna olla meir tálmunum en framförum, ... “15 En það þarf ekki að lesa þingræður lengi til að sjá að sá skilningur sem þingmenn lögðu í hugtakið frelsi var afskaplega ólíkur þeim sem við eigum að venjast. Fyrir þeim var, svo ég vitni beint í ræðu séra Davíðs Guðmundssonar í öreigagiftingamálinu árið 1869, „frelsi ... ekki óbundið sjálfræði, og að mínu viti er það náttúruréttur manna, að félagið veiti einstaklingnum vernd sína til þess að ganga inn í þá stöðu, sem líkur eru til að hann geti orðið sjálfum sér og félaginu til heilla í ... “16 Eg held að þessi ummæli lýsi nokkuð vel afstöðu meirihluta þingmanna til frelsis einstaklingsins. Frelsi var að þeirra mati ekki skýlaus réttur sérhvers manns heldur gjöf samfélagsins til þeirra sem með það kunnu að fara. Þeim fannst ekki felast neitt ósamræmi í því að takmarka rétt manna til giftinga eða til að velja sér atvinnu á sama tíma og þeir lofsungu frelsið. „Frelsið er hin mesta heill þjóðanna," sagði Magnús Jónsson í Bráðræði á þingi 1865, „og það hnoss, sem hver á að virða og halda í heiðri innan þeirra takmarka, sem það er bundið við. En hvernig þetta geti átt sér stað hjá óreglumönnum, skil ég ekki ... “17 Til að skilja ummæli Magnúsar verðum við að athuga frekar hvað hann og kollegar hans áttu við þegar þeir vildu takmarka frelsi óreglumanna. Öll samfélög leggja einhver höft á þegna sína, og jafnvel í draumsýn frjáls- hyggjumannsins er gert ráð fyrir takmörkunum á frelsi þeirra sem ógna samfélaginu. En þessi hópur óreglumanna var, í augum þingmanna um miðja 19. öld, nokkuð stór. Jón Sigurðsson, hreppstjóri og bóndi á Haugum 462
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.