Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Side 49

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Side 49
samtímaheim okkar. Sama skrifræðið ríkir allsstaðar og ræður öllu. Stéttabaráttan hef- ur verið leyst af hólmi af stofnunum sem líta niður á þá sem á þeim þurfa að halda. Handverkskunnáttu fer stöðugt hnignandi. Ráðamenn eru sífellt með heimskulegt hjal um ást sína á æskunni. Heilu hópar fólks fara saman í sumarfrí. Sveitirnar verða því ljótari sem minni ummerki sjást eftir verk bænda. Einhæfni er að aukast. Og svo það sem er verst við þessa sameiginlegu þætti: virðingarleysið fyrir einstaklingnum og einkalífinu. Hér réttlæta menn það í nafni hins heilaga upplýsingafrelsis. En gat lög- gæsla kommúnista sem betrekkti svefnher- bergin okkar með hljóðnemum ekki líka krafist réttar síns og ,,upplýsingafrelsis“? Einu gildir hvert þjóðskipulagið er, öll höf- um við lifað og hrærst, bæði hér og þar, í heimi þar sem sama djúpstæða þróunin á sér stað, í þeirri sataníu sem prófessor Avenaríus talar um í Ódauðleikanum, ef ég má leyfa mér að vitna í þá sögupersónu mína sem mér er einna kærust. Frá þessu sjónarmiði virðist mér sem reynslan af kommúnismanum gagnist mér vel til að átta mig á heimi samtfmans yfir- leitt. Hún hefur skerpt sýn mína á ýmis fáránleg fyrirbæri sem fólk hér um slóðir lítur ýmist á sem eitthvað ómerkilegt og léttvægt eða sem hluta af hinu Heilaga Lýð- ræði. Svikin við erfðaskrá Goethe Eitt af því sem Evrópumönnum hefur mis- tekist í gegnum tíðina er að hugsa skáldsög- una, þá listgrein sem er hvað evrópskust, sem sögulega heild. Það er sama hvaða handbók maður opnar, hvaða safnriti mað- ur slær upp í, ævinlega er fjallað um heims- bókmenntirnar sem þversummu af bók- menntum þjóðanna. Rétt eins og hver og einn sé að skrifa í sínu horni, óháður öllum hinum! En það er engu að síður staðreynd, svo við höldum okkur við skáldsöguna, að Steme sótti innblástur í Rabelais, Diderot sótti innblástur í Sterne, Goethe sótti inn- blástur í Diderot. Allt frá upphafi hefur þróun skáldsögunnar verið yfirþjóðleg. Goethe sagði það oft og lagði sérstaka áherslu á það: tími þjóðlegra bókmennta er að baki og tími heimsbókmenntanna runn- inn upp. Þessi hugmynd er á vissan hátt hluti af erfðaskrá Goethe. Enn ein svikin erfðaskráin. Því gagnrýnendur og bók- menntasagnfræðingar komast ekki út fyrir hið landfræðilega sérsvið sitt. Auðvitað er gagnlegt að skoða skáldsögu í þjóðlegu samhengi til að komast að því hvaða hlut- verki hún gegnir í sögu þjóðarinnar. En það hefur lítið upp á sig ætli maður að reyna að átta sig á listrænu gildi sömu sögu. Þá verð- ur að skoða hana í evrópsku samhengi: þannig er markmiðið ekki að athuga hvaða áhrif skáldsagan hefur haft á sögu tiltek- innar þjóðar, heldur hlut hennar í fram- þróun listar skáldsögunnar, hvaða ókönnuð svið tilverunnar hún hefur upplýst, upp á hvaða formnýjungum hún hefur fitjað. Það sem Goethe átti við á sínum tíma er þetta: það er einungis hægt að koma auga á fag- urfræðilegt gildi verksins með því að skoða það í yfirþjóðlegu samhengi. Ef maður lítur á skáldsöguna Jakob og meistarinn eftir Diderot í samhengi franskra bókmennta má segja að hún sé lítið annað en skemmtun og afþreying þessa mikla hugsuðar. Þegar maður setur þessa „skemmtun" hins vegar í samhengi við sögu evrópsku skáldsögunnar kemur í ljós TMM 1993:4 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.