Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Page 77
fræðin flækir viðfangsefni sín og firrir þau ,,eðlilegum“ skilningi. Raunin er hinsvegar sú að það er hugtakið ,,áhrif‘ sem er afturþungt; það er drekk- hlaðið fræðilegum og sögulegum skírskot- unum sem notendur gera sér oft litla grein fyrir. Engin úttekt verður gerð á þeim hér, en því skal þó ekki neitað að ,,áhrif‘ eiga að ýmsu leyti vel heima í skáldskaparfræð- um fyrri alda. Samning skáldskapar var löngum talin hvíla á eftirlíkingu, og sú eft- irlrking laut ekki eingöngu að veruleikan- um heldur að fyrirmyndum sem sjá mátti í öðrum skáldverkum. Allt fram á 18. öld þótti eðlilegt að skapa verk undir ljósum áhrifum frá fyrirmyndarskáldskap. Á þessu verður róttæk breyting með róm- antíkinni og upp rennur öld frumleikans, sem hefur staðið að minnsta kosti til skamms tíma. En síðastliðin öld hefur jafn- framt verið öld tortryggninnar, ekki síst fyrir tilstilli hugsuða einsog Marx, Nietz- sche og Freud sem opnuðu sýn á togstreitu og bresti í sambandi einstaklings og sam- félags á Vesturlöndum. Listin hefur, eins og aðrar mannlegar afurðir, orðið undirorpin spumingum um eignarhald, bælingu og vald; um ,,upplýstan“ og ,,meðvitaðan“ einstakling andspænis sögu, hefð og ríkj- andi skipulagi. í sjálfri listsköpuninni ryðj- ast slíkar spumingar öflugast fram í módernismanum, þar sem róttæk nýsköpun er samfara andófi gegn valdi margskonar hefða og sögulegrar raunsæis- og rök- hyggju eins og hún hafði þróast á 19. öld. Andspænis arfi rómantíkurinnar er módemisminn hinsvegar afar klofinn. Áhersla hans á nýsköpun, og oft á tíðum framúrstefnu, virðist einkennast af frum- leikahugsun. Öðmm þræði beinist tor- tryggni hans þó ekki síst gegn hugmynda- fræði frumleikans. Módemísk verk vekja sjaldan með lesandanum þá blekkingu að þau séu sjálf upphaf þess skilnings sem þarf til að lesa þau; þau virka sem texti í mótun er vísar jafnt til fyrri texta sem til hins ófullgerða verks lesandans. Eins brjóta módernísk verk gjaman af sér þjóðlega ramma og slíta sig frá hinu staðbundna upphafi. Ummerki slíks klofnings milli uppruna- hyggju og alþjóðahyggju má raunar sjá í rannsóknum sem upphófust á síðustu öld í nafni ,,samanburðarbókmennta“ (e. ,,com- parative literature“), en viðfangsefni þess- arar ritsmíðar gefur tilefni til að víkja stutt- lega að þeim. Á 19. öld var í þeim fræðum gjaman lögð mikil áhersla á áhrifarann- sóknir (e. „influence studies“); leitaðir vom uppi áhrifavaldar verka og hugað á ýmsan hátt að rótum þeirra og uppmna, og oft reynt að festa hendur á ,,þjóðlegum“ einkennum.2 Með samanburði bókmennta í ólíkum löndum myndaðist á hinn bóginn visst andóf gegn þessum þjóðlega bók- menntasöguskilningi sem mjög færðist í aukana á 19. öld og oft var (og er) mjög einangrandi. Innan samanburðarbókmennta tókst þó ekki að móta nýjan og styrkan bókmennta- söguskilning sem staðist gæti hinni þjóð- legu bókmenntasögu snúning. Á fyrri hluta þessarar aldar var mikil kreppa í greininni og það er ekki fyrr en komið er nokkuð fram á síðari hluta aldarinnar að endumýjaður kraftur færist í samanburðarbókmenntir, ekki síst í Bandaríkjunum. Þá tekur þetta hugtak í raun að marka vettvang almennrar bókmenntafræði og kenningalegrar um- ræðu sem er fjölþjóðleg í sjálfri sér og oftar en ekki þverfagleg og hefur orðið til að koma á innbyrðis tengingum í hugvísind- TMM 1993:4 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.