Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Qupperneq 44

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Qupperneq 44
til í þeim skilningi að það feli í sér allsherjarsamþykki við að valdhafar í hverju ríki geri nákvæmlega það sem þeim sýnist innan sinna landamæra. Ekki frekar reyndar en einstaklingsfrelsi þýði að hver og einn geti gert það sem honum sýnist heima hjá sér, barið konu sína og limlest börnin. Þar að auki gera ríki að sjálfsögðu með sér ótal milliríkjasamninga um samvinnu á mörgum sviðum sem marga má túlka sem vissa skerðingu á fullveldi — ef menn vilja endilega hlaupa um á þeim buxum. En þessi dæmi eru samt sem áður annars eðlis en sú róttæka skerðing fullveldis sem er á döfinni hjá Evrópusambandinu — svo það sé nefnt sem skiptir máli nú og hér. Vegna þess ekki síst að þegar fullveldið rýrnar og veslast upp þá fer lýðræðið sömu leið. Þegar æ fleiri málum er skotið til yfirþjóðlegra stofnana, þá fækkar þeim að sama skapi sem kjörnir fulltrúar landsfólksins fást við. Ákvarðanir, góðar sem illar, fjarlægjast þá sem fýrir þeim verða. Hið fræga ópersónulega og hátimbraða skrifræði sem hefur verið nútímamann- inum mikill höfuðverkur allt frá því Franz Kafka breytti kynnum sínum af því í frægar martraðarbókmenntir, það eflist að miklum mun. Rýrnun fullveldis fylgir andlýðræðisleg stöðlun mannlífs. Tökum dæmi: Vel getur orðið til eindreginn pólitískur vilji í einu Evrópulandi til þess að það markmið skuli hafa algjöran forgang að útrýma atvinnuleysi. En ef ráðstafanir sem menn telja nauðsynlegar til að útrýma atvinnuleysi stangast á við reglur miðstjórnarvaldsins í Brussel um viðskiptahætti og samkeppni, þá hlýtur hinn lýðræðislegi vilji að víkja. Fyrir tveim árum varð dönsk hægristjórn að taka aftur skatt nokkurn á fýrirtæki — reglur ESB bönnuðu hann, hann truflaði ákvæði um samkeppnisstöðu fyrirtækja. Dæmið segir drjúga sögu: menn hafa ekki lengur rétt til að heimta skatt af þegnum þótt líf velferðarkerfisins liggi við og pólitísk samstaða sé fengin í landinu. Lýðræðið verður hornreka í hagsmunahöll fýrirtækjanna. Það er heldur ekki víst að þær rytjur sem eftir verða af þjóðríkinu fái að framkvæma sinn pólitíska vilja í menningarmálum. Frakkar hafa barist fyrir því að fá að styrkja kvikmyndaiðnað sinn með ýmsum ráðum til þess að hann deyi ekki út af, þeim leiðist að vonum að sitja í heimsþorpinu þar sem ekki er boðið upp á neitt annað á tjaldi en nokkrar amrískar metsölumyndir eða fjöldaframleiðslu í B-flokki. En enginn veit hve lengi þessi evrópska stórþjóð kemst upp með sérvisku í þessum efnum. Bandaríkjamenn og margir innan ESB hafa gert að Frökkum harða hríð fýrir að vilja taka kvikmyndagerð undan markaðslögmálunum á þeirri forsendu að hún sé menning en ekki iðnaður. Allt stríðir það, segja gagnrýnendur, gegn þeirri meginreglu ESB að ekki megi mismuna atvinnustarfsemi eftir þjóðerni þeirra sem að henni standa. Með öðrum orðum: lýðræðið (og menningin urn leið) víki fyrir alveldi markaðarins. 42 TMM 1994:4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.