Tímarit Máls og menningar - 01.12.1994, Page 137
PS (frá ritstjóra)
Eins og lesendur hafa eflaust tekið eftir er yfirskrift þessa lokaheftis TMM
1994 „íslenska lýðveldið fimmtugt“. Sjálfsagt finnst mörgum þetta vera að
bera í bakkafullan lækinn, nóg sé nú komið af umfjöllun og umferðarhnút-
um af þessu tilefni. Því er til að svara að heldur er ólíklegt að meginviðfangs-
efnið í tímaritinu hnýti umferðarhnúta; hins vegar er von okkar sem að
tímaritinu stöndum að þær fimm greinar sem hér birtast á prenti verði þarft
viðbótarframlag til umræðunnar um sjálfsmynd og stöðu okkar íslendinga
í heiminum, umræðu sem staðið hefur yfir allt þetta ár. Af þessu tilefni er
TMM óvenju veglegt að þessu sinni, eða 136 bls.
Þegar núverandi ritstjórn tók við fyrir rúmu ári var sú hugmynd viðruð
að opna tímaritið meir en áður fyrir öðrum listgreinum en skáldskap, enda
þótt hann yrði áfram í öndvegi.
Viðbrögðin við þessari hugmynd hafa verið mjög góð eins og m.a. sést á
þessu hefti sem inniheldur greinar um leiklist og tónlist. Og minna má á að
fýrr á árinu birtist grein um kvikmyndun Sölku Völku. Þá hefur heimspeki
verið nokkuð fyrirferðarmikil í tímaritinu síðasta ár og hafa viðbrögð verið
það jákvæð að okkur þykir ástæða til að halda áfram á svipaðri braut.
Myndlistin á sinn fasta sess á kápunni, en auk þess verða væntanlega birtar
greinar um myndlist á næsta ári í tímaritinu.
Erlent efni hefur birst spánnýtt í TMM (Derrida, Kosik) og framhald
verður þar á, því tímaritið er í beinu sambandi við vönduð tímarit eins og
Libérté í Kanada og Atelier du roman í París. Brátt birtist efni úr þeim hér og
þau eru þegar farin að birta eða hafa sýnt áhuga á því að birta skáldskap og
greinar eftir íslenska höfunda.
Um síðustu áramót voru gerðar nokkrar útlitsbreytingar á TMM. Við
höfum fengið góð viðbrögð við þeim og fjölbreyttara efnisval virðist mælast
vel fyrir, enda hefur áskrifendum heldur fjölgað undanfarið þrátt fýrir
krepputal í þjóðfélaginu.
Við vonum því að stefnan falli áskrifendum vel í geð og að þeim eigi enn
eftir að fjölga, enda er markmið okkar óbreytt: að þjóna áskrifendum TMM,
tryggja þeim vandað, fjölbreytt og ánægjulegt les- og umhugsunarefni með
reglulegu millibili.
F.R.
TMM 1994:4
135