Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Page 110
munahóps, sem hefði verið ritskoðaður út úr sögunni. Um þessi nöfn var síðan talað, of mikið og of lengi, á meðan umræðan hefði átt að snúast um þá gömlu karlabókmenntasögu sem verið var að gagnrýna. Sömuleiðis hefði að ósekju mátt ræða meira um það hvernig menningarleg völd eru fengin og hvernig þeim er beitt, eða það sem franski félagsfræðingurinn Pierre Bourdieu kallar „baráttuna um hið menningarlega svið“. Ég fagna nú samt þessum sjónvarpsþætti sem ég held að sé fyrsti og eini umræðuþátturinn um bókmenntir sem gerður hefur verið hjá sjónvarpinu á forsendum femínískr- ar gagnrýni. En til hvers eru femínískir bókmenntafræðingar að berjast fyrir kvennabókmenntum ef rithöfundarnir sjálfir vilja ekki sjá þetta hugtak? Fyrsta skilgreining hugtaksins „kvennabókmenntir“ hljóðaði svo: „bók- menntir effir konur, um konur, fyrir konur“. Þessi skilgreining vekur um- svifalausa köfnunar- og innilokunarkennd enda var hún afskrifuð nánast strax og hugtakið skilgreint sem „bókmenntir eftir konur“. Hugtakið var beinlínis ætlað til að geta haldið „kvennabókmenntunum“ fram til jafns við „karlabókmenntir“, gagnrýna tvíhyggjuna sem úthlutaði bókmenntum eftir karla sólarhliðinni en skipaði konum sess í skugganum. Krafist var réttar og virðingar sem bókum kvennanna hafði ekki verið sýnd. Hugtakið er þannig pólitískt hugtak til notkunar í „baráttunni um hið menningarlega svið“. Ef konum sem skrifa bókmenntir eða skrifa um bókmenntir finnst þetta hugtak þrengja að sér eða eru ósammála því hafna þær því að sjálfsögðu. Það gerir franska skáldkonan Daniéle Sallenave í skemmtilegu viðtali við Friðrik Rafnsson (TMM, 1, 1988) sem hann notar í grein sinni. Ég mæli með því viðtali en bendi jafnframt á að þegar franskar menntakonur tala um „femín- isma“ og „kvennabókmenntir“ vísa þær til síns eigin samfélags, þar sem þessi hugtök hafa aðra sögu og merkingu en í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Norðurlöndum. Norski bókmenntafræðingurinn Toril Moi gerir grein fýrir þessu í bók sinni Sexual/Textual Politics (1985). Meira máli skiptir ef til vill að nokkrar af okkar helstu skáldkonum, Fríða Á. Sigurðardóttir, Svava Jakobsdóttir og Álfrún Gunnlaugsdóttir, hafa sagt eitthvað svipað í viðtölum, þ.e. að þær skrifi ekki „sem konur“ heldur skrifi þær með hjálp tvíkynja ímyndunarafls síns. Ég skil þessar yfirlýsingar þannig að með „tvíkynja“ sé átt við kynin tvö, ekki aðeins sem líffræðilegkyn heldur félags- og menningarlega ákvörðuð kyn (á e. ,,gender“) og þegar skáldin tali um hina tvíkynja sköpun tali þau um tvenns konar sjálfsmynd og tvenns konar orku sem eigist við í stöðugri víxlverkun í bókmenntatextanum. Hugtakið „tvíkynja“ vísar ekki til einhvers konar sálfræðilegrar útjöfnunar heldur til tveggja rafskauta í vitundinni með ærinni spennu á milli sín og gefandi átökum í og á milli hugveranna. Ég er sammála því að sú „kynjahyggja“ sem kennd hefur verið við „rót- tækan femínisma“ og lesa má um í amerískum greinum og fræðibókum, sé jafn „einsýn“ og „ofstækisfull“ og hin krampakennda karlremba sem vill helst afturkalla alla kvennabaráttuna og koma aftur á menningarlegu ein- 104 TMM 1995:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.