Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Síða 124

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Síða 124
„Ekki fleiri sögur!“ „En þetta er bókmenntaleg tilvísun!" „Og hvað með það?“ „Hún dýpkar söguna af Marie-Sophie og vesalingnum, föður mínum, og lætur hana kallast á við heimsbókmenntirn- ar.“ „Sama er mér! Segðu mér frá barninu, segðu mér frá þér!“ „Þú átt við það?“ „Já! Dummtadumm, annars er ég far- in!“ (205-206) Þetta dæmi lýsir samskiptum sögu- manns og áheyranda nokkuð vel en á milli þeirra ríkir góðlátleg og stríðnisleg togstreita sem drífur frásögnina áfram. Og vel að merkja nær sögumaðurinn sínu fram, þetta er hans saga og skal vera sögð þrátt fyrir frekjulætin í konunni. Þessi frásagnaraðferð veitir höfundin- um óskorað frelsi til að segja óhindraður sögur í sögunni því lesandinn sættir sig fljótt við útúrdúrana vitandi af dug- miklum hlustanda sem grípur í taum- ana í hvert sinn sem sögumaður fer of geyst! Snjallt hjá Sjón sem með þessum innskotum fær lesandann einnig til að huga að samskiptum rithöfundar og les- enda svona almennt og yfirleitt. Er þeim ekki einmitt svona farið? Rithöfundur- inn getur ekki án lesandans verið þótt honum leiðist stundum aðfmnslur hans og án rithöfundarins fengi lesandinn engar sögur! I samræðunum örlar einn- ig á stríðni í garð túlkunarglaðs lesanda eða hver kannast ekki við athugasemd- ina úr ofangreindri tilvitnun: „ . . . dýpkar söguna . . . og lætur hana kallast á við heimsbókmenntirnar“? Gamalkunnar klisjur úr ritsafni gagn- rýnandans koma víðar fyrir á síðum bókarinnar og eru meinfýndnar í með- förum höfundar og úr því að sögumað- ur minntist á þetta af fýrra bragði er best ég grípi orð hans á lofti og notfæri mér þau við umfjöllun um bókina! Sagan kallast hátt og snjallt ekki að- eins á við heimsbókmenntirnar, heldur einnig sögu og kvikmyndir eins og áður hefur verið vikið að. Biblían er töluvert notuð, t.d. í upphafi bókarinnar þar sem engill birtist Marie-Sophie í draumi og boðar henni komu gyðingsins. Þótt stúlkan sé bundin öðrum manni líkt og stalla hennar María forðum hlýðir hún þó boðum hans eins og hún. Fallegur og ljóðrænn titill bókarinnar er einnig sótt- ur í Biblíuna, nánar tiltekið í 139. Dav- íðs-sálm: „Augu þín sáu mig, er eg enn var ómyndað efni,...“ og vísar til sköp- unar sögumanns og dularfullra og ein- lægra samskipta móður og barns: „Ég vaknaði til lífsins og augu hennar sáu mig.“ (210) Opinberunarbókin virðist höfundi hugleikin og eru vísanirnar í þá háalvarlegu bók á broslegum nótum. Ein hliðarsagan segir af erkienglinum Gabríel sem býr sig undir að blása í lúð- ur sinn og kalla dómsdag yfir lýðinn en af því að satan er ekki til í heimsendi alveg strax villir hann um fyrir englin- um á svo svívirðilegan hátt að honum mistekst ætlunarverk sitt. Lýsingarnar á englinum eru í hæsta máta gróteskar og í eff irfarandi lýsingu er hann ekki vitund líkur virðulegum engli Opinberunar- bókarinnar sem stendur traustur og óhaggaður með hægra fót á hafrnu en þann vinstra á jörðunni (Í0.2-3): Gabríel stóð kfofvega yfir Evrópu og fjaðurmagnaður líkaminn var frosinn í afkáralegri stöðu; hægri fóturinn hvíldi á Grænlandsjökfi og sá vinstri a pers- nesku hásléttunni, hann ríghélt kyrtlin- um að skauti sér og lúðurinn skagaði klúr fram úr hendi hans, siifurbjart höf- uðið var keyrt aftur í aldjúpan geiminn og munnurinn herptur saman eins og á piparmey. (112) En hvað eiga slíkar lýsingar á sjálfum erkienglinum að þýða? Hvað er höfund- urinn eiginlega að fara? Mér finnst freistandi að skoða samskipti andskot- 118 TMM 1995:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.