Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Side 97

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Side 97
LITLU VARÐ VÖGGUR FEGINN „Was ist Aufklárung?“-Hvað er upplýsing? Tilgangurinn er meðal annars sá að sýna fram á svipaðar hræringar innan heimspeki og frásagnarbókmennta á átjándu öld. Þar er í fáeinum línum vikið að túlkun Foucaults á sömu ritgerð, en hún birtist fyrir fáeinum árum í Skírni og er mikilvægur hluti af íslenskri upplýsingarumræðu; og um ritgerð Foucaults er sagt: „Ef gengið er að þessari túlkun . . .“ (bls. 36-7) Varla á fullyrðingasemi Einars Más við þessa málsgrein. Ætli hann eigi þá við hugmyndasögulegan kafla, „íslensk vísindabylting11, þar sem fjallað er allrækilega um vísindalegar aðferðir sautj- ándu og átjándu aldar, meðal annars með hliðsjón af vísindaepistemi Foucaults (bls. 56). Þar er þó tæplega um svífandi alhæfingar að ræða,heldur er tiltekin greining notuð til að sýna ff am á samhengi íslenskrar og evrópskr- ar vísindastarfsemi, auk þess sem henni er beitt „í beinu einvígi við afmarkað viðfangsefhi“, þ.e. fræðirit um náttúru íslands eftir Jón Grunnvíking, Svein Pálsson og Eggert Ólafsson. Hér er vísindasaga Foucaults höfð til hliðsjónar af því hún varpar merkilegu ljósi á íslenskar heimildir, jafhframt því sem tekið er fullt tillit til annarra nútímarita um vísindasagnffæði. Textagrein- ingin sjálf skiptir samt sem áður mestu máli, settar eru ffam skýringar sem hver og einn getur tekið afstöðu til; hvort rit Jóns Ólafssonar um sædýr og fiska, Icthyographia Islandica (1737), feli í sér „upplýsta“ náttúrufræði eða ekki, svo dæmi sé tekið. Varla á Einar Már við þetta - eða hvað? Ætli hann eigi ekki fremur við málsgrein í sama kafla sem hljóðar svona: „Hér verður ekki úr því skorið hvort um aðgreind þekkingarkerfi (epistemes) í skilningi Michels Foucault var að ræða á 18. öld . . .“ (47) Einar Már virðist nefnilega gera því skóna, þrátt fyrir þessi ummæli, að kenning Foucaults um ólík „þekkingarkerfi“ sem „séu á bak við alla þekkingu manna á einhverju ákveðnu tímabili og standi gjarnan öldum saman áður en þau víki fyrir öðru „þekkingarkerft““, eins og það er orðað, sé viðtekinn sannleikur þessarar bókmenntasögu. Um þetta er fimbulfambað án frekari röksemda með yfirlýsingum sem þessum: „Égá t.d. erfitt með að sjá hvernigmenn eiga aðgeta skilið hugarfarslýsinguna bls. 50-52 í bókmenntasögunni án þess aðþekkja kaflann um „prósa veraldarinnar“ í riti Foucaults „Orðin og hlutirnir. ..“ Tekið skal fram að í umræddum kafla er fjallað með mörgum dæmum um íslenska náttúrudulhyggju, teikna- og fyrirboðatrú, til dæmis hjá séra Jóni Steingrímssyni, getið er hugmynda um lífræna heild, þar sem náttúran hefur „vitund“ og talar til manna í táknum og fyrirboðum, þar sem dulið samsvörunar- eða líkingarlögmál tengir sam- an sýnileg og ósýnileg fyrirbæri; minnst er á spilverk efnislegra og yfirskil- vitlegra krafta, jafnffamt því sem vikið er að táknfræði fyrri tíma, afstöðu fólks til tungumáls og hvernig það dró líkingar um eigið líf af viðburðum náttúrunnar. Allt er þetta afskaplega þjóðlegt, þótt finna megi hliðstæður við TMM 1997:4 95
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.