Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Side 126

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Side 126
RITDÓMAR skap og minnimáttarkennd íslendinga, hógværð sögumanns er kærkomin til- breyting frá drambsemi íslendingsins, og hugmyndin um íslensku þjóðina sem afgreiðuslustúlku í bensínsjoppu verður alltaf meira og meira sannfærandi. Gunnþórunn Guðmundsdóttir Hann hefur heyrt íslenska tóna Jón Leifs - tónskáld í mótbyr eftir Carl-Gunnar Áhlén. Mál og menning, 1999. Lidu verður Vöggur feginn, segir máltæk- ið. Eflaust hafa margir glaðst við útgáfu þessarar ævisögu Jóns Leifs, enda orðið afar tímabært að bæta úr langvinnum skorti á slíku riti. Fram að þessu hefur fátt verið aðgengilegt á prenti um tónskáldið, nema hvað stutt æviágrip Hjálmars H. Ragnarssonar birtist í Andvara árið 1990, auk þess sem meistaraprófsritgerð hans er að finna á helstu bókasöfnum höfuðborg- arinnar. Carl-Gunnar Áhlén, höfundur ævisögunnar nýju, er sænskur tónlistar- blaðamaður sem skrifaði ítarlega grein um Jón Leifs í þarlent tímarit fyrir rúmum ára- tug, og hefur nú bætt og aukið verk sitt á ýmsan hátt. Þrátt fyrir ýmsa vankanta er nokkur fengur að þessari bók, einkum fyr- ir tvær sakir. Áhlén hefur safnað saman töluverðri vitneskju um líf Jóns í Þýska- landi og Svíþjóð, og hefúr aukþess haft að- gang að umfangsmiklu bréfasafni Jóns, sem nú hefur verið afhent Handritadeild Landsbókasafns/Háskólabókasafns til varð- veislu, en var í einkaeign þegar bókin var rituð. Þessar nýju heimildir varpa off nýju ljósi á ævi og starf Jóns og fjölskyldu hans, og langar tilvitnanir úr bréfum og blaða- dómum eru í raun það mikilsverðasta sem bókin hefur ff am að færa, því ýmislegt má finna að sjálffi úrvinnslu Áhléns á efninu. Reyndar tekur höfúndur ff am í formála að bókin sé fyrst og ffemst hugsuð sem „handbók", rituð „í von um að fá leyst úr álögum þau verk Jóns Leifs sem enn eru óflutt“. Slík viðleitni er auðvitað allrar virðingar verð. Hins vegar verða þeir vísast fýrir nokkrum vonbrigðum sem vonuðust eftir ffæðilegri úttekt á Jóni Leifs og tónhst hans í þessari bók Áhléns. Hinir, sem sætta sig við „handbókina", ættu þó einnig að hafa í huga að hroðvirknisleg vinnubrögð höfundar draga á köflum mjög úr nota- gildi hennar, og verður aðeins hægt að tæpa á því helsta hér að neðan. Ævisaga tónskálds þarf að uppfylla tvö skilyrði öðrum ffemur. Hún þarf að bregða upp trúverðugri mynd af tónskáld- inu sjálfú og umhverfi þess, en ekki er síður nauðsynlegt að hún megi verða tfl að auka skflning manna á sjálfri tónlistinni, með því að útskýra á aðgengOegan hátt helstu verk tónskáldins, samhengi og þróun ffá einu verki tO hins næsta. Hvorugt þessara skOyrða uppfyllir þessi nýja ævisaga nægi- lega vel. Raimar er engu líkara en Áhlén lýsi yfir uppgjöf strax í formála bókarinnar: „Þótt vandað sé til ffásagnar í hvívetna er ógjömingur að bregða upp gagnrýnni og nákvæmri mynd af manni og ævi hans. Sérhver ævisaga um lifandi eða látinn mann má heita að sé sprottin úr jarðvegi hleypidóma og nærist á tOgátum þar sem eitt rekur sigá annars horn“ (bls. 8). Hér er hætt við að margir reki upp stór augu. Eða er ekki einmitt JOutverk ævisöguritarans að reyna að bregða upp „gagnrýnni og ná- kvæmri mynd“ af viðfangsefúi sínu? Áhlén telur slíkt greinOega ekki vera. Bókin ber þess greinOeg merki, að höfundur hennar fæst að staðaldri við blaðaskrif. Atburðum er slegið ffam í æsifféttastfl, og þegar efni- viðurinn er ekki nógu spennandi kryddar Áhlén hann vafningalaust með „hleypi- dómum“ og „tOgátum". I 9. kafla („Eld- fjallið rumskar") rekur höfundur t.d. upp- lausnina í fyrsta hjónabandi tónskáldins á fjórða áratugnum og vitnar í fjölmörg bréf Jóns og Anniear máli sínu tO stuðnings. En þó vekur það grunsemdir lesandans, að 116 www.malogmenning.is TMM 2000:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.