Allt um íþróttir - 01.10.1953, Side 26
unnar tók höggunum að rigna á
La Starza án þess hann fengi við
nokkuð ráðio. Þulurinn tók fram
hvað eftir annað, að nú slægi
Ma rciano eins og hann framast
megnað'i og undraðist stórum,
að La Starza skyldi enn vera
uppistandandi í lok lotunnar.
8. lota. Marciano dominerar
nú alveg og er nú sýnilega farið
að draga af La Starza, sem þó
gerir margt fallegt við og við.
Farið er að blæða úr sári fyrir
ofan annað auga La Starza og
nefið er úr lagi.
9. lota. La Starza tapaði út úr
sér gúmmíinu í miðri lotunni.
Marciano er miskunnarlaus og
kemur á hann mjög góðum högg-
um. La Starza blæð'ir nú mjög
og Marciano virðist nú ekki eiga
annað eftir en að fullkomna
A'erkið á rothögginu, en vörn La
Starza er góð, þrátt fyrir að hann
er nú mjög illa út leikinn og
líkir þulurinn viðureigninni við
það, er Billy Conn hafði Joe
Louis algjörlega á valdi sínu um
árið, en tókst aldrei að l'ullkomna
verkið eins og kunnugt er.
10. lota. Aðstoð'armönnum La
Starza hefur tekizt að stöðva
blóðtennslið úr nefi hans og
gagnauga, en högg Marcianos
eru þung og stór, svo ekki líður
á löngu áður en La Starza tekur
að blæða á nýjan leik. La Starza
hefur aldrei fyrr tekið þátt í
keppni, sem lengiá er en 10 lot-
ur. Hann berst enn vel og drengi-
lega, en svo er nú af honum dreg-
ið, að' endalokin eru varla langt
undan.
11. lota. Marciano byrjar lot-
una villtari og gráðugri en «
nokkru sinni í'yrr í keppninni.
Hann sér tækifærið, þar sem
andstæð'ingurinn er nú raun-
verulega einhentur og veitir hon-
um þau þvngstu högg, sem hann
á til, enda varð árangurinn eftir
því „tekniskt konck out“ eftir
1 mínútu og 31 sekúndu af 11.
lotu.
Sagt fyrir keppnina
La Starza: Eg ætla mér að
reyna að sjá til þess, að óþarft
verði að setja upp skilti á Polo
Grounds með áletruninni „La
Starza sofnaði hér“. Nei, ég hef
aldrei verið sleginn „knock out“,
en hins vegar verið sleginn í gólf-
ið fjórum sinnum, en ég hef allt-
af getað hugsað skýrt og meira
að segja getað' talið rétt — og
það mun ég geta líka þann 25.
september.
Marciano: Síður en svo ör-
uggur um sigur. La Starza er
sterkur og tekniskur og það
verður ánægja að fá að mæta
honum.
Sagt eftir keppnina
La Starza: Ég.taldi sjálfum
24
ÍÞRÓTTIR