Allt um íþróttir - 01.10.1953, Síða 32

Allt um íþróttir - 01.10.1953, Síða 32
fullkomlega við mig úti á vell- inum. Svo ákvað ég með sjálf- um mér að reyna nú við markið og segja má, að þaðan hafi ég ekki hreyft mig síðan. I meistaraflokki lék ég fyrst í marki með knattspyrnuflokki íþróttabandaiags Akraness á Is- landsmótinu 1950 og það' sama sumar fór ég, sem lánsmaður, með Knattspymufélaginu Val í knattspyrnuför til Noregs. Alls hef ég nú farið 5 sinnum til út- landa með knattspyrnuflokkum og tekið þátt í 15 kappleikjum á erlendri grund. Arið 1950 hóf ég prentnám hjá Isafoldarprent- smiðju í Reykjavík og gekk þá í Knattspyrnufélagið Val og hef leikið fyrir það félag síðan. Arið 1951 var ég valinn vara- markvörður í landsliðið, en nú í ár tókst mér að hreppa stöðuna og lék alla þrjá landsleiki sum- arsins. Einnig hef ég leikið nokkra leiki í úrvals- og pressu- liðum frá því ég kom til Reykja- víkur árið 1950. Jafnhliða knattspyrnunni hef ég lítilsháttar dundað við frjáls- ar íþróttir, en aldrei lagt neina verulega rækt við þær, enda hef ég miklu meira fengist við þær mér til skemmtunar, en til að ná árangri. Þó sakar ekki að nefna hér nokkra árangra úr því þið' biðjið mig um það. í lang- stökki hef ég náð bezt 6.34 metr- um, í þrístökki 13.29 metruin, kúluvarpi 11.98 metrum og 100 metra hlaupi 12.2 sek. Hand- knattleik hef ég og iðkað, en að- eins lítilháttar. Eg er ekki langreyndur í knattspyrnunni og get þess vegna ekki talað um stöðu mína á leikvellinum af mikilh reynslu, en þó er það eitt, sem mig lang- ar til þess að minnast örlítið á. Þegar ég lék minn fyrsta landsleik nú í sumar var ég mjög taugaóstyrkur fvrir leikinn. Inni í búningsherbergjunum minntist ég á þennan taugaóstyrkleika við félaga minn, Svein Helgason, en hann svaraði eitthvað á þá leið. að' það væri alveg ástæðu- laust að fara kvíðandi inn á völl- inn og svo bætti hann við: „Ef þú gerir þitt bezta mun allt fara vel“. Með þessi hughreystingar- orð hans í liuga fór ég inn á völlinn. I>g gerði skyssur og fékk meðal annars á mig eitt klaufa- mark, en því mun ég aldrei gleyma, að samherjar mínir í vörninni skömmuðu mig ekki fyrir klaufaskapinn, heldur töldu í mig kjark og ég fann, að þeir treystu mér þrátt fyrir allt. Eins og þið getið ímyndað ykkur hð'- ur markverði ekki vel eftir að hafa fengið á sig mark, sem hann veit, að hann hefði auðveldlega átt að geta komið í veg fyrir. Þegar svoleiðis nokkuð kemur 30 fþróttir

x

Allt um íþróttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.