Allt um íþróttir - 01.10.1953, Page 44
Sigurkasfið á Olympíuleikjunum 1896
var helmingi styffra en núgildandi
heimsmef Giordiens
Gamall heimsmethafi í kringlu-
kasti, Svíinn Harald Anderson,
lét syo um mælt, eítir að honum
hafði borizt til eyrna hinn ótrú-
legi árangur Gordiens í kringlu-
kastinu: „Takist þeim (fyrir
vestan) að kasta yfir 60 metra,
þá verð ég myrkfælinn“. „En“,
bætir hann við, „það er fyrst og
fremst hraðinn í kasthringnum,
sem Ameríkumenn hafa tamið
sér, er stuðlað hefur að því, að
unnt hefur verið að' kasta kringl-
unni svona ótrúlega langt. Ef
* við, sem æfðum kringlukast á
árunum eftir 1930, hefðum gert
okkur Ijóst hvað hraðinn í
hringnum hefur að segja og æft
samkvæmt því, þá er ég viss um,
að okkur hefði tekizt að kasta
miklu lengra. Að vísu ekki 59
metra, en 55 metrum hefðum við
átt að geta náð“.
Framfarirnar mestar
í kringlukastinu
Á síðastliðnum 20 árum hefur
engri íþróttagrein fleygt eins
mikið fram og kringlukastinu.
42
Árangrar ársins 1933 eru alveg
tilvaldir til samanburðar við ár-
angra ársins í ár, því það ár voru
toppmenn Olympíuleikjanna í
Los Angelees (1932) hvað virk-
astir á íþróttasviðinu og á næstu
árum þar á eftir fylgdi mikil
framþróun, ekki aðeins í kringlu-
kasti, heldur og fjöldmörgum
öðrum greinum frjálsra íþrótta.
Við þurfum í því sambandi ekki
annað en nefna nöfn eins og
Torrace í kúluvarpinu, Nikkan-
en í spjótkasti og þýzku sleggju-
kastarana Hein og Blask ásamt
töframanninum í stangarstölck-
inu, Warmerdam.
Ef við berum saman miðað
við prósenttölu framþróun hinna
ýmsu greina, þá komumst við
fljótt að raun um, að köstunum
hefur fleygt mest fram. Til gam-
ans fylgir hér tafla, sem sýnir
gildandi heimsmet árið 1933 og
1953 og fyrir aftan prósenttala
framþróunarinnar.
1033: 1953:
100 m hlaup 10.3 10.2 1%
200 m hlaup 20.0 20.2 2%
ÍÞRÓTTIR