Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 49
Meistoramót íslands
í frjálsum íþróttum
Meistaramót íslands í frjáls-
um íþróttum var haldið á Akur-
eyri dagana 15.—18. ágúst s.l.
á nýjum íþróttavelli þeirra Ak-
ureyringa, og hafði hann verið
hátíðlega vígðnr kvöldið fyrir
niótið með ræðuhöldum og
knattspyrnu. Þessi tiiberytni, að
halda mótið utan Reykjavíkur,
gafst vel, niótið fór í alla staði
skemmtilega fram, þótt ef til vill
hafi nokkrir dauðir punktar
spillt ánægju áhorfenda, sem
voru margir. Er þar átt við tafir,
sem komu fyrir, þannig að að'-
eins ein eða jafnvel engin grein
var í gangi. En leikstjórinn, Har-
aldu.r Sigurðsson, liafði í mörg
liorn að líta og hafði auk venju-
legra vandkvæða við óblíða veð-
urguði að stríða, svo að óhætt
mun að' fullyrða, að hann og fé-
lagar hans úr Knattspyrnufélagi
Akureyrar, sem sáu um mót
þetta, liafi leyst af hendi ágætt
starf, svo gott, að fáir hefðu bet-
ur gert. Er þess að vænta, að
Frjálsíþróttasamband Islands
feli þeim Akureyringum oftar
Meistaramótið, til dæmis væri
skemmtilegt, að mótið færi þar
ÍÞRÓTTIR
fram annað hvert ár, en hitt í
Reykjavík, þar til fleiri staðir á
landinu hafa orðið að bjóða full-
komna keppnisvelli.
Hinn nýi völlur á Akureyri
reyndist liinn bezti í alla staði.
Hlaupabrautin er þó talin nokk-
uð' hörð í þurrkum, en þess varð
ekki vart þessa daga, það gott
gerði þó regnið. Brautin virðist
gefa góða tíma í hlaupunum, t.
d. 400 metrana, sem Guðmund-
ur Lárusson hljóp á 40.5 sek., og
reyndist það bezta afrek móts-
ins, gefur 884 stig samkvæm^
nýju stigatöílunni.
Mótið hófst laugardaginn 15.
ágúst kl. 16.00, eftir að Ármann
Dalmannsson, formaður íþrótta-
bandalags Akureyrar liafði sett
það með stuttri ræðu. Veður var
þá sæmilegt, nokkur sunnanátt
og skúraleiðingar með fjöllum, en
þær létu lítið til sín taka þenn-
an dag. Golan háði liins vegar
hlaupunum, 100 m og 110 m
grind, sem hlaupin voru beint
gegn áttinni, og 1500 m, en áður
en 400 m fóru fram lygndi
skyndilega, og var um það bil
logn, meðan hlaupið fór fram.
47