Allt um íþróttir - 01.10.1953, Síða 58
Akurnesingar léku við' Norð-
mennina sællar minningar. Þetta
var sem sé leikurinn, sem gatið
kom fyrir í. Um miðjan síðari
hálfleik stóðu leikar 2 :2, er
Dagbjartur Hannesson, mið-
framvörður Akurnesinga spyrnti
frá miðhringnum í átt að marki
Valsmanna. Knötturinn fór hátt
og hafnaði að lokum í markneti
Vals. Línuvörðurinn, Steinn
Steinsson, veifaði á rangstöðu,
dómarinn, Guðjón Einarsson, úr-
skurðaði mark, en flestir leik-
manna Vals neituðu að byrja
leikinn að nýju, er ljósmyndari
benti á gat á markþaki Vals.
Stóð í þrefi unz dómari sótti
knöttinn inn í netið og setti
hann niður á miðdepilinn. Senni-
lega hefði enginn annar milli-
ríkjadómari í heiminum látið
bjóða sér slíkan mótþróa, liefðu
án efa ílestir orðið til þess að
gefa fyrirliða örstuttan frest til
Jæs sað hefja leik að nýju, en
síðan vísað öllu liðinu út af.
Þrátt fyrir mikið þras um J)að,
hvora leiðina knötturinn hafi far-
ið inn í netið, fæst aldrei skorið
úr því, álit sjónarvotta eru skipt,
og stjórn Vals gerði rétt, er hún
lét málið kyrrt liggja. Enginn
hefði getað breytt úrskurði dóm-
arans, sem er endanlegur. Með
því að úrskurða leikinn ógildan
á grun færi héðan í frá naumast
fram sá kappleikur, sem ekki yrði
kærður, og með slíkum úrskurði
yrði fótunum kippt undan úr-
skurðarvaldi dórnara. Mál, sem
þetta, hafa komið fyrir erlendis,
en ætíð hefur úrskurður dómara
verið tekinn gildur.
Mál, sem þetta, fellur fljótlega
í gleymsku, en nú er kominn tími
til þess, að skapa Islandsmótinu
Jjann heiðurssess, sem Jdví bar
sem aðalmóti íslenzkrar knatt-
spyrnu. Hvenær verður fyrir-
komulag íslandsmótsins eitthvað
í líkingu við þetta
Laugardagur 8. maí 195?
Reykjavík: Kl. 17.00, KR—
Fram. Dómari: N. N.
Sunnudagur 9. maí195?
Reykjavík: Kl. 15.00. Valur—
Víkingur. Dómari: N. N.
Akranes: Kl. 17.00. Akranes—
Þróttur. Dómari: N. N.
Laugardagur 15. maí 195?
Reykjavík: Kl. 17.00. Valur—
KR. Dómari: N. N.
Sunnudagur 10. maí 195?
Reykjavík: KI. 15.00. Fram—
Akranes. Dómari: N.N.
Reykjavík: Kl. 20.30. Víking-
ur—Þróttur. Dómari: N. N.
Laugardagur 29. maí 195?
Reykjavík: Kl. 17.00. KR—
Víkingur. Dómari: N. N.
Sunnudagur 30. maí 195?
Akranes: Kl. 17.00. Akranes—
Valur. Dómari: N. N.
Reykjavík: Ivl. 20.30. Þróttur
—Fram. Dómari: N. N.
56
ÍÞRÓTTIR