Allt um íþróttir - 01.10.1953, Page 67

Allt um íþróttir - 01.10.1953, Page 67
Allft getur skeð í kKicsttspyrmi Svo er hér að lokum ein lítil saga frá gamalli viðureign milli erfðafjendanna KR og Vals. Leikar stóðu 4 : 2 fyrir KR og óvænlega horfði fyrir Valsmönn- um, þar sem mjög lítið var eftir af leiktímanum. Gisli í Hala lék á kantinum fyrir KR og komst í ágætt færi og skaut einni af sínum frægu kanónum í blá hornið. Dómarinn var öruggur með, að boltinn myndi hafna í markinu, og flautar mark. En hann var of fljótur á sér, því Hermanni Hermannssvni, sem stóð í Aralsmarkinu, tókst að grípa boltann alveg á marklín- unni. Hermann tók það í sig að liggja kyrr með knöttinn og hreyfa sig hvergi og KR-ingar og Valsmenn bentu dómaranum á, að marki hefði eigi verið náð og gekk sá síðarnefndi úr skugga um, að svo var ekki og breytti því dómi sínum samkvæmt. því. Stuttu síðar sendir Hennann boltann langt fram á kant til Gísla Kjærnested, sem stikaði með hann áleiðis að KR-mark- inu og skaut hæð'arbolta, sem Anton í KR-markinu ætlaði að slá burtu, en hitti ekki. Stóðu þá leikar 4 : 3 fyrir KR. Á síð- ustu mínútu leiksins sendir Jó- hannes Bergsteinsson boltann langt fram á vítateig KR-inga og Valsmenn ná að skora annað mark í sama stíl og hið þriðja. Á örfáum mínútum hafði marka- staða leiksins breytzt frá því að vera hér um bil orðin 5 : 2 fyrir KR í það að vera jafntefli. Framli. af 2. kápusíðu. Sigurgeir Guðmannsson, KR, Guðmundnr Tngimundarson, Val og Einar Jónsson, Þrótti. Fundi var síðan slitið og gest- um boðið til kaffidrykkju. Und- ir borðum voru fluttar margar ræður og skemmtilegar frásagnir frá fyrstu starfsárunum. Þessir tóku til máls: Benedikt G. Waage, forseti í. S. I., Pétur Sigurðsson, Erlend- ur O. Pétursson, Einar Björns- son, Magnús Guðbrandsson, Sig- urjón Jónsson, formaður KSI, og Gísli Halldórsson, formaður ÍBR. Að lokum þakkaði formaður gestunum komuna og ánægju- lega kvöldstund.

x

Allt um íþróttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.