Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 19.–21. ágúst 2011 Helgarblað
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
I
nnanríkisráðuneytið hefur hafnað
beiðni Björgólfs Guðmundssonar,
fyrrverandi forstjóra Hafskips og
síðar aðaleiganda Landsbanka Ís-
lands, og Páls Braga Kristjónsson-
ar, fyrrverandi framkvæmdastjóra fjár-
málasviðs Hafskips, um að ráðuneytið
láti ríkissaksóknara rannsaka málið á
nýjan leik. Fimm blaðsíðna bréf með
synjun ráðuneytisins var sent til Ragn-
ars Aðalsteinssonar, lögmanns Björg-
ólfs og Páls Braga, síðastliðinn föstu-
dag. Beiðni Hafskipsmannanna hefur
velkst um í kerfinu í nokkurn tíma.
Björgólfur og Páll Bragi hafa unnið
að því frá því fyrir íslenska efnahags-
hrunið að Hafskipsmálið verði rann-
sakað á nýjan leik þar sem þeir telja
það óuppgert og að nýjar upplýsing-
ar hafi komið fram sem taka þurfi til-
lit til. Árið 1991 hlutu tvímenningarn-
ir skilorðsbundna fangelsisdóma fyrir
efnahagsbrot í Hafskipsmálinu, ásamt
Ragnari Kjartanssyni, sem lést árið
2008.
Létu rannsaka málið sjálfir
Teymi lögfræðinga og sagnfræðinga
vann að því fyrir þá Hafskipsmenn að
rannsaka rannsóknina á Hafskipsmál-
inu sem hófst eftir að skipafélagið var
tekið til gjaldþrotaskipta í árslok árið
1985. Talsverð umnræða var um þessa
rannsókn í íslenskum fjölmiðlum á
árunum 2007 og 2008. Meðal annars
voru skrifaðar tvær sagnfræðibækur
um málið, sem kostaðar voru af Björg-
ólfi, þar sem rannsókn málsins á sín-
um tíma var gagnrýnd.
Í grein í Morgunblaðinu í byrj-
un október 2008 kom til dæmis fram
að stór hluti rökstuðnings Hafskips-
manna fyrir því að rannsaka ætti málið
á nýjan leik byggði á athugunum sem
birtar voru í annarri bókinni, Hafskip í
skotlínu eftir Björn Jón Bragason, sem
þá var nýkomin út. Síðan þá hefur lít-
ið spurst til þessara krafna Hafskips-
manna.
Málinu ekki lokið
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Haf-
skipsmanna, segir að bréf ráðuneyt-
isins hafi borist síðastliðinn föstudag.
Hann segist vera ósammála þeim rök-
um sem ráðuneytið teflir fram um að
beita sér ekki fyrir því að fram skuli fara
rannsókn á Hafskipsmálinu. „Ráðu-
neytið verður ekki við kröfum okkar
um að gefa fyrirmæli um að fram skuli
fara rannsókn á þessu máli.“
Ragnar segir aðspurður að líklegt
sé að Hafskipsmenn muni leita ann-
arra leiða til að málið verði rannsak-
að á nýjan leik. „Ég er ekki að segja að
ég sé hættur. Nú þurfum við bara að
velta fyrir okkur næstu skrefum. Þetta
er ekki fullnægjandi afstaða að lögum
sem kemur fram í bréfinu.“ Hafskips-
málinu, eða þessum seinni anga þess,
virðist því ekki enn vera lokið.
Ekki náðist í Björgólf Guðmunds-
son eða Pál Braga Kristjónsson við
vinnslu fréttarinnar.
Beiðni Hafskipsmanna
um rannsókn hafnað
n Innanríkisráðuneytið hafnaði beiðni um rannsókn á Hafskipsmálinu n Hafskipsmenn kostuðu sjálf-
stæða rannsókn á málinu fyrir hrunið 2008 n Lögmaður Hafskipsmanna segir að málinu sé ekki lokið
„Ég er ekki að segja
að ég sé hættur.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Höfnun innanríkisráðuneytisins Innan-
ríkisráðuneyti Ögmundar Jónassonar hefur
hafnað beiðni Hafskipsmanna um að ráðu-
neytið láti rannsaka Hafskipsmálið á nýjan leik.
Sjálfstæð rannsókn
Björgólfur Guðmundsson
og tveir aðrir stjórnenda
Hafskips, létu framkvæma
sjálfstæða rannsókn á
Hafskipsmálinu sem beiðni
þeirra um nýja opinbera
rannsókn byggði á.