Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2011, Blaðsíða 43
Fókus | 43Helgarblað 19.–21. ágúst 2011
Hvað er að gerast?
n Hádegistónleikar í Ketilshúsinu
Þær Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og Jane
Ade Sutjaro píanóleikari verða með klass-
íska tónleika í hádeginu í Ketilshúsinu á
Akureyri. Þetta eru síðustu hádegistónleik-
arnir í tónleikaröðinni Listasumri sem fram
hafa farið í Ketilshúsinu í sumar. Tónleikarnir
hefjast klukkan 12 og efnisskrá tónleikanna
er fjölbreytt. Aðgangseyrir er 1.500 krónur
og 1.000 krónur fyrir eldri borgara.
n Hunang á Spot
Hljómsveitin Hunang treður upp á Spot
bæði föstudags- og laugardagskvöld. Karl
Örvarsson er forsprakki hljómsveitarinnar
en hún spilar dansvæna popptónlist sem
höfðar væntanlega til danþyrstra gesta.
n Sálin hans Jóns míns á Nasa
Lítið hefur farið fyrir hljómsveitinni það sem
af er þessu ári en nú verður breyting þar á.
Í tilefni 10 ára afmælis skemmtistaðarins
Nasa hafa þeir félagar í Sálinni ákveðið að
halda dúndurball til að fagna afmælinu.
Hljómsveitin kemur til með að flytja alla
sína þekktustu smelli og lofa mikill stemm-
ingu. Þetta verða einu tónleikar hljómsveit-
arinnar í bili og því ættu aðdáendur ekki að
láta þennan viðburð fram hjá sér fara.
n Torgarahátíð á Húsavík
Átthagafélag Torgara blæs til Torgarahátíð-
ar á Húsavík um helgina. Þetta er í fimmta
sinn sem hátíðin er haldin og verður ekkert
til sparað. Ýmislegt verður í boði á hátíðinni
sem fram fer á Rauða torginu á Húsavík.
Meðal annars kappleikur í knattspyrnu,
Torgaraóðurinn verður sunginn og sérstök
hátíðarsamkoma verður á laugardags-
kvöldinu. Þar verður boðið upp á fjörug
tónlistaratriði sem að sögn aðstandenda
hátíðarinnar munu ekki verða endurtekin
á þessari öld. Slegið verður upp dansleik á
torginu þegar líða fer á kvöldið en dagskrá
lýkur klukkan 24.
n Leiksýning í Norðurpólnum
Leikritið As soon as they know me er leik-
húsverk sem fjallar um nýtt umhverfi og
hvernig nýjar aðstæður geta haft áhrif á
okkur. Verkið er sett upp af Maddit-hópnun
sem er leikhópur sem var stofnaður árið
2007 af leikkonunum Völu Ómarsdóttur og
Mari Rettedal-Westlake. Hópurinn leggur
áherslu á tilraunir í sviðslistum þar sem
mismunandi listgreinar koma saman til
þess að móta heildarmyndina. Verkið er
sýnt í Norðurpólnum sem staðsett er í
Sefgörðum 3 á Seltjarnarnesi. Sýningar
verða bæði laugardag og sunnudag klukkan
20. Miðaverð er 1.600 krónur.
n Ragnheiður
Gröndal og
Ylfingarnir
Sönkonan
Ragnheiður Gröndal
og Ylfingarnir koma
fram í Þjóðmenn-
ingarhúsinu í dag
klukkan 17. Ylfingarn-
ir eru leiddir áfram af
bróður Ragnheiðar,
saxófónleikaranum
Hauki Gröndal, en
þau systkini hafa
spilað töluvert mikið saman. Aðrir meðlimir
í bandinu eru Ásgeir Ásgeirssom, Þorgrímur
Jónsson og Pétur Grímsson. Tónleikarnir
eru hluti af Jazzhátíð í Reykjavík. Þau ætla
að flytja djass- og dægurlög frá 3., 4., og 5.,
áratug síðustu aldar.
19
ágú
Föstudagur
20
ágú
Laugardagur
21
ágú
Sunnudagur
Það verður kyrrð og ró eins og vera ber
í Borgarbókasafni Reykjavíkur á Menn-
ingarnótt. Þar verður kynnt japönsk
menning.
Yoko Thordarson kynnir japanskt tungu-
mál og mismunandi tegundir mynd-
leturs – Hiragana, Katakana og Kanji.
Þátttakendum gefst kostur á að læra að
skrifa eigið nafn og/eða uppáhaldsorð
með myndletri. Takmarkaður fjöldi í
hverjum hópi svo fólk er hvatt til að
mæta tímanlega.
Þá er upplagt að sjá Etsuko Satake sýna
gestum hvernig japönsk teathöfn fer
fram og gestir fá að bragða á teinu.
Japönsk
menning
BORGARBÓKASAFN
REYKJAVÍKUR
Japönsk myndleturssmiðja
KL. 16.00–16.30
Japönsk Teathöfn
KL. 14.00–18.00
Kyrrð og ró á
bókasafninu
Japanskt te og
kynning á letri.
Hildur Yeoman sýnir nýja fylgihlutalínu
sína, Cherry Bomb collection, í versluninni
Kronkron að Laugavegi 63b á Menningar-
nótt. Innblástur að línunni fékk Hildur frá
sterkum kvenpersónum og þykir bæði
rokkuð og pönkuð.
„Það er mun villtara yfirbragð yfir hönnun
minni en áður,“ segir Hildur frá og segist
til að mynda hafa horft á myndir af hinni
illvígu Mallory úr myndinni Natural Born
Killers í leit að áhrifum. „Ég leik mér líka
áfram með heklið og sauma út í það. Ég er
með hálsfestar og töskur og hannaði líka
fatalínu sem er enn sem komið er sýningar-
gripir.“
Hildur ætlar einnig að stílisera gluggann þar
sem ný skólína Kron by Kronkron og hönnun
hennar verða í aðalhlutverki. Hún sýnir
einnig ljósmyndaverk sem unnin voru af
henni og Sögu Sigurðardóttur ljósmyndara í
tengslum við Cherry Bomb-línuna.
Um áttaleytið verður dregið í happadrætti
og djassarar í Tríó Bók spila lifandi tónlist.
Verðlaunin í happadrættinu eru sérlega
vegleg og eru bæði frá Kron by Kronkron og
fylgihlutir eftir Hildi Yeoman.
KRONKRON
Kl. 20:00 - 22:00
Kynnir nýja línu Hildur Yeoman kynnir
nýja fylgihlutalínu, Cherry Bomb.
n Ljósmyndasýning, happadrætti og ný fylgihlutalína
Mikið líf í Kronkron
á Laugavegi
Fjölbreyttur hópur sem starfar saman
á Járnbrautarstöðinni við Hólmaslóð 2
býður til menningarveislu með myndlista-
sýningu, fjölbreyttri tónlist og markaði.
Síðdegis laugardaginn 20. ágúst, á Menn-
ingarnótt í Reykjavík, munu þeir aðilar
sem starfa saman á Járnbrautarstöðinni
við Hólmaslóð 2 halda tónleika, mynd-
listarsýningu, fiskiveislu og tónlistarmark-
að í rými sínu. Í húsnæðinu (sem stendur
við Járnbraut) eiga sér heimili fjögur
tónlistarverkefni auk tónlistarútgáfunnar
Kimi Records og lager verslunarinnar
Havarí. Verslunin Havarí var staðsett við
Austurstræti 6 og tók virkan þátt í dag-
skrá Menningarnætur í fyrra.
n Hljómsveitirnar Sudden Weather
Change, Reykjavík!, Prinspóló, Luv og
Jóhann Kristinsson munu spila fyrir gesti
og gangandi nýtt efni í bland við eldra.
n Ísak Óli Sævarsson er 22 ára mynd-
listarmaður sem hefur vakið mikla athygli
fyrir myndir sínar. Ísak er einhverfur og
hefur verið einstaklega duglegur síðustu
árin að mála uppáhaldssöguhetjur sínar
úr þeim bókum sem lesnar hafa verið fyrir
hann. Hann á að baki nokkrar sam- og
einkasýningar, til dæmis í Norræna hús-
inu, List án landamæra og í fyrrgreindri
Havarí.
n Útgáfan Kimi Records í samstarfi við
Havarí mun halda markað á vínil- og
geislaplötum, hljómsveitarbolum, mynd-
list og ýmsum varningi.
Hólmaslóð 2
Járnbrautarstöðin
Frá kl. 17:00
Menningarmarkaður
við höfnina
Í fyrsta skipti á Menningarnótt mun sendi-
herra Bandaríkjanna, Luis Arreaga, opna
sendiherrabústaðinn fyrir almenningi. Þetta
er til að fagna því að 25 ár eru síðan Seattle
og Reykjavík urðu systurborgir. Gestir koma
til með að geta skoðað listaverk frumbyggja
norðvesturhluta Norður Ameríku.
Af þessu tilefni býður Reykjavíkurborg
einnig Seattle að ganga í bæinn og mun
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur fyllast af
fjölbreyttu listalífi frá Seattle fyrir börn og
fullorðna.
Jón Gnarr borgarstjóri og Luis E. Arreaga,
sendiherra Bandaríkjanna, setja Seattle-
dagskrána í Ráðhúsi Reykjavíkur. Quileute-
indíánar blessa viðburðinn og stíga svo
úlfadans, segja sögur og miðla af þekkingu
ættbálks síns.
Luis segist vilja fylgja þeirri hefð sem er
fyrir því að opna hús sitt fyrir gestum á
Menningarnótt. „Við viljum hitta Ís-
lendinga, bæði í eigin persónu og í gegnum
samfélagsmiðla okkar, svo sem Facebook
og Youtube. Ég vona að gestir á Menn-
ingarnótt fái notið myndlistarsýningar
sem er í sendibústaðnum frá svæðum
Norður Ameríku.“ Sendiherrann heldur úti
bloggi og hefur bloggað um opnun hússins:
ambassadorblogiceland.blogspot.com.
SENDIRÁÐSBÚSTAÐUR
BANDARÍKJANNA
& Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
KL. 15.00–16.30
Sendiherrann
með opið hús
Það verður sannkölluð tónlistarveisla í
Miðbænum á Menningarnótt og úr nógu
að velja yfir allan daginn.
Bylgjan fagnar 25 ára afmæli á Ingólfs-
torgi. Bein útsending Bylgjunnar hefst
á Ingólfstorgi kl. 12.20 og skemmtun kl.
13.30. Fram koma : Páll Óskar Hjálmtýs-
son, Jón Jónsson og Friðrik Dór, Sveppi
og Villi, Á móti sól og Hvanndalsbræður.
Festisvall í Hjartagarðinum
og góðgerðatónleikar á Sódómu
n Ríkuleg tónlistarveisla í Miðbænum
Til styrktar
fátækum
börnum
Á Sódómu standa svo hjálparsamtökin
Veraldarvinir fyrir góðgerðatónleikum.
Tilgangur tónleikanna er að safna fé sem
nýtist starfi sam-
takanna á Tierra
Bomba-svæðinu
þar sem börn búa
við gríðarlega
fátækt og skort.
Margir af fremstu
listamönnum
þjóðarinnar koma
fram á tónleik-
unum og má þar
nefna Bjartmar og Bergrisana, Haffa Haff,
El Camino og The Vintage Caravan og munu
fleiri nöfn bætast í hópinn á næstu dögum.
Húsið verður opnað klukkan 21.00 og er
aðgangseyrir einungis 1.000 kr. og mun allt
fé sem safnast renna óskipt til hjálparstarfs
Veraldarvina.
INGÓLFSTORG
KL. 12:20–13.30
Ungir myndlistarmenn, tónlistarmenn
og hönnuðir taka þátt í viðburðinum
Festisvall, sem er nú haldinn í annað
sinn yfir Menningarnótt. Viðburðurinn
mun eiga sér stað í Hjartagarðinum,
en einnig teygja anga sína út á helstu
viðburðarstaði borgarinnar – Hemma
og Valda, Macland port, Faktorý og
Ellefuna.
Festisvall
Á Bar 11
14.00 Vintage Caravan
15.00 Berndsen
15.30 Just another Snake Cult
16.00 Lockerbie
16.30 Prinspóló
Ótrúleg fimi Meðlimur
kínverska fimleikahópsins
sýnir fimi sína.
n Járnbrautarstöðin býður til menningarveislu