Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2011, Blaðsíða 13
Fréttir | 13Helgarblað 19.–21. ágúst 2011
Lífshættulegar spyrnukeppnir
í Reykjavík
U
mferðarstofa stendur
fyrir sérstöku nám-
skeiði fyrir byrjend-
ur í umferðinni sem
hafa verið settir í akst-
ursbann og sviptir ökuleyfi á
meðan þeir eru með bráða-
birgðaskírteini. Markmið
námskeiðsins er að stuðla að
bættri hegðun byrjenda í um-
ferðinni og að þeir sýni meiri
hlýðni við umferðarreglur. Kol-
brún Baldursdóttir sálfræðing-
ur er hluti af teymi sem sér um
fræðslu fyrir þennan hóp. „Ég
kenni í Ökuskólanum í Mjódd
námskeið sem eru fyrir krakka
sem hafa misst prófið með
bráðabirgðaskírteini. Þar er
þessi hópur krakka sem hafa
verið teknir fyrir hraðakstur að
koma inn. Mín reynsla sýnir
að oftar eru þetta ungir strákar
frekar en stelpur en það er ein-
kennandi fyrir marga krakkana
að sækja í hraða og spennu og
þeir eru áhættusæknir.“
Vill hækka bílprófsaldur
Í viðtali í síðasta tölublaði DV
sagði Einar Magnús Magnús-
son hjá Umferðarstofu rann-
sóknir sýna að vitundarþroski
ungmenna á bílprófsaldri væri
í mörgum tilfellum takmark-
aður hvað varðar ábyrgðartil-
finningu og dómgreind. Að-
spurð segir Kolbrún það mjög
mikilvægt að hækka bílpróf-
saldur upp í 18 ár. „Það er eng-
in spurning í mínum huga.
Sem sálfræðingur vil ég segja
það að mín reynsla af því að
vinna með börnum og ung-
lingum er sú að það er gríðar-
legur þroskamunur á þessu
eina ári. Eitt ár á þessu tímabili
munar miklu bæði hvað varðar
vitsmunaþroska og tilfinninga-
og félagsþroska. Ég get líka sagt
fyrir mig sem foreldri að ég var
mjög stressuð þegar mín börn
fóru að aka 17 ára gömul. Ekki
það að dætur mínar myndu
endilega gera mistök heldur
það að geta ekki brugðist rétt
við aðstæðum. Að hafa ekki
þennan þroska að geta fylgst
með mörgum hlutum í einu og
viðbragðsflýti til að bregðast
við óvæntum atburðum,“ segir
Kolbrún.
Heppin að vera stöðvuð
Kolbrún segir það vera áhuga-
vert og gefandi að tala við
krakkana á námskeiðinu. Hún
vill meina að þau séu móttæki-
leg fyrir fræðslu og almennt já-
kvæð fyrir því að breyta akst-
urshegðun sinni til hins betra.
„Það er ekki sama hvernig þú
ræðir þessi mál við krakkana
en þetta virðist ná til þeirra. Við
ræðum oft í þessum hóp hvað
þau eru í raun og veru heppin
að hafa verið stoppuð af á þess-
um tímapunkti og að hafa verið
stoppuð áður en þau ollu öðr-
um eða sjálfum sér skaða. Ég
reyni að láta þau sjá að það að
hafa verið stöðvuð af lögregl-
unni sé í raun og veru jákvætt
og nú hafi þau tækifæri til að
hugsa dæmið upp á nýtt. En svo
veit maður ekkert hvernig þetta
skilar sér inn í atferli þegar þau
fá prófið aftur og byrja að keyra
um á götum borgarinnar. Mað-
ur vonar bara það besta.“
Ökunámið gott
Aðspurð hvort henni finnist
vanta upp á frekari forvarnir
eða fræðslu fyrir krakka sem eru
á bílprófsaldri svarar hún því
neitandi og segir að ökukennsla
hér sé almennt mjög góð. „Ég
held að ökunámið hér sé al-
mennt mjög gott. Ég spyr þau
hvort það hafi verið eitthvað
sem gleymdist að segja þeim
í ökunáminu, eins og það að
maður ekur ekki undir áhrifum
og það sé ákveðinn hámarks-
hraði sem beri að virða. Ég fæ
alltaf þau svör að þetta hafi ver-
ið mikið rætt og farið vel yfir í
náminu en svo virðist sem það
falli í einhverja glufu hjá þeim.“
Kolbrún segir ekki mega
gleyma ábyrgð foreldra og
mikilvægt sé að foreldrar brýni
fyrir börnum sínum að sýna
ábyrgð í umferðinni. Þeir séu
fyrirmyndir og verði að hegða
sér samkvæmt því. Hún verði
vör við að þau ungmenni sem
sækja þessi námskeið eigi sjálf
foreldri sem hafi jafnvel verið
svipt ökuleyfi. „Það er líka eitt
einkenni unglingsáranna að
krakkar geta verið mjög áhrifa-
gjarnir. Við brýnum líka fyr-
ir krökkunum að láta aldrei
mana sig í spyrnu eða kapp-
akstur. Minnum þau á að
allt sem þau gera er á þeirra
ábyrgð. En ég vil biðla til allra
foreldra að byrja snemma að
tala um ábyrgð við börnin
sín og þegar svona skelfileg-
ar fréttir berast af hraðakstri
sem endar með hörmungum
að minna þau á að þetta getur
komið fyrir alla. Líka þig.“
„Ég reyni að
láta þau sjá
að það að hafa verið
stöðvuð af lögreglunni
sé í raun og veru já-
kvætt og nú hafi þau
tækifæri til að hugsa
dæmið upp á nýtt.
Fræða krakka sem hafa misst prófið
n Spyrnukeppnir á götum borgarinnar hafa endað með banaslysum n Talið að slík keppni hafi orsakað banaslysið á Geirsgötu
n Myndbönd á netinu sýna spyrnukeppnir á götum Reykjavíkur n Kappakstur ekki það sama og að keppa í spyrnu á götum borgarinnar
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Vill hækka bílprófsaldur upp í 18 ár n Biðlar til foreldra að tala um ábyrgð við börn sín
Foreldrar eru fyrirmyndir Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur segir
ungmenni geta verið áhrifagjörn og mikilvægt sé að foreldrar ræði við þau
um ábyrgð í umferðinni.
Ökuþór eða ökuníðingur „Þú ert ekki
ökuþór þegar þú ert að stinga lögregluna af á
180–190 kílómetra hraða og kemst upp með
það,“ segir Einar Magnús.
mynd PressPHoto.Biz
Götukappakstur í borginni
DV kannaði hvar spyrnukeppnir eru helst stundaðar á höfuðborgarsvæðinu. Við-
mælendurnir sem DV ræddi við – hvern í sínu lagi – nefndu allir eftirfarandi staði.
Grandi í reykjavík
Geirsgata í reykjavík
sæbraut í reykjavík
Hringbraut í reykjavík
reykjanesbraut á suðurnesjum
1
2
3
4
5
5
18 ára stúlka lést
Sæbraut við Kringlumýrabraut
Þrír fluttir á slysadeild
Gatnamót Miklubrautar og Bústaðavegar
3
Harður þriggja bíla árekstur
Hringbraut
Þrír fluttir á slysadeild
Gatnamót Mýrargötu og Geirsgötu
4
1
2
17 ára drengur lést
Gatnamót Geirsgötu og Tryggvagötu