Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2011, Blaðsíða 45
Lífsstíll | 45Helgarblað 19.–21. ágúst 2011
Jóhannes Kjarval að störfum í vinnustofu sinni í Austurstræti um miðja síðustu öld.
Menningarnótt
í Landsbankanum
Við bjóðum fjölbreytta dagskrá í útibúinu
í Austurstræti 11. Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur kynnir gestum og gangandi
stórkostleg listaverk á göngum bankans
og hópur listafólks flytur magnaða dagskrá.
Landsbankinn hefur verið máttarstólpi
Menningarnætur frá upphafi. Verið
velkomin í skemmtilega menningarlega
veislu í Austurstræti 11.
Dagskrá Menningarnætur í Austurstræti 11
12:00, 12:45, 13:30 Listaverkaganga.
14:30 Skemmtun fyrir börnin. Tinna táknmálsálfur og Sproti.
15:00 Bændur flugust á, Íslendingasögurnar í nýjum búningi.
16:00 Uppistand með félögum úr Mið-Íslandi.
17:00 Jón Jónsson ásamt hljómsveit
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Margt gott fylgir ellinni:
Það eru margir kostir sem fylgja
því að eldast þó oftar séu gallar
þess fyrirferðarmeiri í umræðunni.
Auknum árafjölda fylgir oft mikil-
væg viska sem ungt fólk getur lært
af:
Aldrinum fylgir aukin vitneskja
Hugsaðu um hvað þú hefur þróað
með þér marga góða kosti og hversu
mikla vitneskju þú hefur öðlast yfir
árin. Gamall maður býr yfir miklu
meiri vitneskju en ungur sem á eftir
að kynnast mörgu af því sem sá eldri
hefur lært. Lífið snýst um það að
læra og því eldri sem við verðum því
meira vitum við.
Sáttari við sjálfan sig
Þeir sem eru ungir að árum eiga oft
í baráttu við sjálfsmynd sína. Sjálfs-
traustið er oft og tíðum ekki mikið
en það er nokkuð sem oft þróast með
árunum. Eftir því sem kertunum á
afmæliskökunni fjölgar því sáttari
verða margir við sjálfsmynd sína.
Þú tekur betri ákvarðanir
Þegar maður hefur lifað lengi þá er
maður líklegri til að taka réttar ákvarð-
anir. Þeir sem eru eldri hafa rekið sig á
í lífinu og margir hverjir lært af mis-
tökunum. Ákvarðanir í ellinni eru því
oft betur ígrundaðar en þegar maður
er yngri. Þetta er þó ekki algilt.
Mikilvæg viska
Fleiri árum fylgir viska Þeir sem eldri eru luma
oft á góðum ráðum fyrir þá sem yngri eru.
Eldri jafn ham-
ingjusamir og
ungir
Samkvæmt nýlegri rannsókn fylgir
ellinni meiri hamingja en mörg okk-
ar virðast halda. Í rannsókn dr. John
Garry í Queens-háskóla, kom fram
að þótt ungt fólk tengi ellina gjarnan
við leiðindi og óhamingju minnkar
hamingja okkar ekki eftir því sem
við eldumst – eldra fólk er alveg
jafn hamingjusamt og það yngra.
Í ljós kom að ungir karlmenn sem
drekka mikið áfengi eru sérstaklega
vissir um að ellinni fylgi tóm leið-
indi. „Ungt fólk elskar að skemmta
sér og gerir það gjarnan á kostnað
heilsunnar með drykkju, dópi, reyk-
ingum og lélegu mataræði. Ef það
heldur að lífið sé búið eftir fertugt
sér það ekki tilgang í að halda í heils-
una,“ segir Garry.
Vilja líkama
í stíl við
hugarfarið
Æ fleiri bandarískir eldri borgarar
nýta sér þjónustu lýtalækna í feg-
urðarskyni. Í fyrra lögðust tæplega
90 þúsund þeirra undir hnífinn í
aldurshópnum 65 ára og eldri. Fyrir
valinu var meðal annars andlits-
lyfting, fitusog og brjóstastækkun
eða -minnkun. Samkvæmt sérfræð-
ingum hefur kreppan haft sín áhrif
þarna eins og annars staðar en fjöldi
sjúklinga virðist aftur á leið upp.
Margar ástæður eru taldar liggja að
baki þessari aukningu. Fólk sé farið
að lifa lengur og halda lengur í heils-
una og vilji því líkama sem passar
við hugarfarið á meðan aðrir eru í
makaleit og vilja auka líkur sínar.
Hreyfing
skiptir máli
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt
fram á að líkamsrækt geri eldri borg-
urum gott. Læknar mæla með léttri
hreyfingu og aldrei meiri en við-
komandi treystir sér til. Göngutúrar,
sund, golf eða léttar leikfimiæfingar
eru góð dæmi um hentuga líkams-
rækt fyrir eldri borgara. Samkvæmt
Landlæknisembættinu getur ávinn-
ingur af hreyfingu fyrir eldra fólk
verið meðal annars: Aukinn vöðva-
styrkur, betra jafnvægi, aukið úthald
við dagleg störf og tómstundir, auk-
inn liðleiki, hægir á beinþynningu,
bætt starfsemi hjarta og æðakerf-
is og betri andleg líðan. Einnig er
bent á að með almennri hreyfingu
geti aukist almenn færni og sjálfs-
bjargargeta fólks. Hreyfing auki sjálf-
stæði og sjálfstraust, dragi úr líkum á
þunglyndi og geri öldruðum kleift að
búa lengur heima.
(tekið af doktor.is)