Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2011, Blaðsíða 12
S pyrnukeppnir eru stundaðar á götum Reykjavíkur um nætur. Lögreglan er meðvituð um spyrnukeppnir en samkvæmt heimildum DV hef- ur dregið úr spyrnukeppnun- um á síðustu mánuðum. Talið er að spyrnukeppnir hafi ver- ið í gangi þegar banaslys varð á Geirsgötu. Eyþór Darri Róberts- son lést í slysinu en hann var farþegi í bílnum. Ökumaðurinn er á svipuðum aldri og Eyþór Darri sem hefði orðið átján ára á mánudaginn var. Sýna sig á Youtube Á myndbandasíðunni Youtube má sjá myndbönd af íslensk- um ungmennum í ofsaakstri á götum Reykjavíkur. Á mynd- böndunum má sjá unga öku- menn keyra úti á Granda og á Sæbrautinni. Sæbrautin hefur meðal annars verið vettvangur banaslyss í umferðinni þar sem 18 ára stúlka lést eftir að hafa farið í spyrnukeppni við ann- an bílstjóra. Fleiri dæmi eru um slík slys bæði í Reykjavík og annars staðar á landinu. Myndböndin sem um ræðir eru síðan árið 2007 og 2008 en síðan þá hefur dregið úr hrað- akstri samkvæmt heimildum DV. Spyrnukeppnir og ofsa- akstur er þó enn stundaður eins og nýleg dæmi sanna. Mótorhjólamaður sem kallar sig Skugga hefur einn- ig sett inn nokkur myndbönd þar sem glæfralegur akstur er sýndur. Þessi nafnlausi mót- orhjólamaður hefur í mynd- böndum sínum sýnt ofsa- akstur í jákvæðu ljósi. Einar Magnús Magnússon hjá Um- ferðarstofu segir að það sé meðal annars rót vandans, að hraðakstur sé sýndur í já- kvæðu ljósi. Ökuníðingur er ekki ökuþór Einar Magnús segir að fjalla þurfi um ofsaakstur undir rétt- um formerkjum. „Einstaka fjölmiðlar falla í þá gryfju að tala um ökuþór, sem er jákvætt orð. Michael Schumacher er til dæmis ökuþór en þú ert ekki ökuþór þegar þú ert að stinga lögregluna af á 180–190 kíló- metra hraða og kemst upp með það. Það er einfaldlega glæp- ur sem getur og hefur ítrekað stórskaðað fólk og drepið. Það á ekki heldur að heita eltingar- leikur þegar lögreglan þarf að leggja sig í stórkostlega hættu í eftirför á eftir hættulegum öku- manni,“ útskýrir hann. Kappakstur er viðurkennd íþrótt og vinsæl um allan heim. Einar Magnús segir spyrnu- keppnir á götum borgarinn- ar ekki vera það sama. „Það að hafa áhuga á kappakstri er enginn glæpur nema síður sé, en að etja kappi úti í almennri umferð er alvarlegt og má í raun líta á það sem tilræði við aðra vegfarendur,“ segir Einar Magnús um spyrnumenningu á Íslandi. Minna um tilkynningar til lögreglu „Spyrnukeppnir hafa ver- ið viðvarandi vandamál en á síðastliðnu ári hefur dreg- ið verulega úr tilkynningum til lögreglu frá íbúum og lög- reglan verður ekki vör við þetta í sama mæli og áður,“ segir Kristján Ó. Guðnason, yfirmaður umferðarmála hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Kristján segir að um- ferðarmenningin í borginni almennt hafi einnig batnað að mati lögreglu á síðustu árum. Lögreglan byggir það mat sitt á tölum um hraðakstursbrot og umferðarslys. „Við sjáum spyrnukeppnir aðal lega á jað- arsvæðum í borginni, þar sem almenn umferð er minni. Til- finningin er samt sem áður sú að dregið hafi verulega úr þessu og það er von lögreglu að það ástand haldist og batni enn í framhaldinu.“ 12 | Fréttir 19.–21. ágúst 2011 Helgarblað Krakkafjör á Korputorgi alla helgina • Frítt í skemmtileg leiktæki og í Krakkahöllina. • Hundasýning yngstu hundaeigendanna hjá Gæludýr.is á sunnudaginn Parísarhjól - Klessubílar - hoppukastalar og margt fleira Pi Pa r\ TB W a • S Ía • 1 12 11 9 Lífshættulegar spyrnukeppnir Flutti vegna spyrnukeppna „Þessi hrað- akstur og spyrna hefur farið út fyrir öll mörk. Ég get ekki sofið á nóttunni vegna hávaða,“ sagði Árný Gyða Steindórsdótt- ir, fyrrverandi íbúi á mótum Vesturgötu og Ánanausta í Reykjavík. Hún flutti á endanum vegna kappakstursins eftir að hafa barist fyrir því að lög- reglan tæki harðar á glæfraakstri í hverfinu hennar í um ár. Árný Gyða sagði ástandið færi alltaf stigversnandi. „Þetta er stór- hættulegt. Mér finnst að þarna þurfi að setja upp hraðahindr- anir eða eftirlitsmyndavélar. Það verður að stöðva þetta,“ sagði hún í samtali við DV um málið. 13. maí 2009 n Spyrnukeppnir á götum borgarinnar hafa endað með banaslysum n Talið að slík keppni hafi orsakað banaslysið á Geirsgötu n Myndbönd á netinu sýna spyrnukeppnir á götum Reykjavíkur n Kappakstur ekki það sama og að keppa í spyrnu á götum borgarinnar Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Úttekt Ökumaðurinn og farþeginn sem lifði af banaslysið við Geirsgötu á föstudag hafa báðir fengið áfallahjálp sam- kvæmt heimildum DV. Báðir eru þeir fæddir árið 1994 en ökumaðurinn varð sautján ára í maí síðastliðnum. Eyþór Darri og félagar hans sem voru með honum í bílnum þegar slysið varð voru saman í grunnskóla og voru allir nánir vinir. Talið er að slysið hafi orðið í kjölfar spyrnukeppni en lögreglan sendi frá sér tilkynningu í byrjun vikunnar þar sem auglýst var eftir vitnum að slysinu. Vinir drengjanna sem DV hefur rætt við segjast ekki kannast við að strákarnir þrír sem lentu í slysinu hafi stundað hraðakstur áður. Margir vina hans eru í félagsskap sem kallast Live2Cruize og samanstendur af hópi bílaáhugamanna. Eyþór Darri var vinmargur og segir einn af hans bestu vinum hann hafa verið lífsglaðan og góðan strák sem kom vel fram við alla. Hann stundaði nám á almennri braut í Tækniskólanum en stefndi á nám á hönnunar- og hands- verksbraut í sama skóla. Eyþór Darri hafði verið að hanna boli þar sem hann notaði silkiþrykk með eigin munstri í hönnunina. Hönnun bolanna byrjaði sem lokaverkefni í grunnskóla og kveikti áhuga hans á hönnun og listum. Ökumaður og farþegi fá áfallahjálp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.