Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2011, Page 64
Spila þau
Working
9 to 5?
Hjólar í Henry Birgi
n Björn Daníel Sverrisson, leikmaður
FH, virðist hafa tekið grein sem
íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir
Gunnarsson skrifaði í Fréttablaðið í
vikunni eitthvað nærri sér. Í grein
inni hvatti Henry Birgir KSÍ til að
taka harðar á leikmönnum sem
svindla með því að fleygja sér í
jörðina með miklum leikrænum til
burðum af minnsta tilefni. Henry
gekk svo langt að
kalla slíkar dýfingar
krabbamein fótbolt
ans. Knattspyrnu
maðurinn skrifaði á
samskiptasíðuna
Twitter: „Feitir
fjölmiðla
menn eru
krabba
mein fót
boltans.“
Vígstaða Björgólfs
n Hafskipsmálinu er ekki lokið,
líkt og greint er frá í DV í dag, þar
sem Björgólfur Guðmundsson og Páll
Bragi Kristjónsson reyna enn að fá
nýja, opinbera rannsókn á málinu.
Beiðni þeirra um rannsókn hefur
verið hafnað af innanríkisráðuneyt
inu en þeir ætla að reyna að leita
réttar síns með öðrum hætti. Víg
staða Björgólfs er hins vegar tals
vert verri nú um stundir en fyrir
hrun þegar hann hóf baráttu sína
fyrir nýrri rannsókn. Þá var Björg
ólfur einn vinsælasti og áhrifamesti
maður landsins
og naut mikillar
samúðar þjóð
arinnar. Þetta
hefur breyst
umtalsvert eft
ir hrunið og fall
Landsbankans
sem Björgólfur
stýrði.
Starfaði fyrir Askar
n Fréttablaðið greindi frá því á
fimmtudag að fyrirtækið Geogreen
house ætlaði sér í umfangsmikinn
tómataútflutning frá Íslandi. Stjórn
arformaður fyrirtækisins heitir Sig-
urður Kiernan og sat fyrir svörum um
verkefnið í blaðinu. Sigurður hefur
ekki mikið verið til umfjöllunar í ís
lenskum fjölmiðlum. Þó greindi DV
frá því í fyrra að hann hefði stýrt fast
eignaverkinu Chester Court í Hong
Kong fyrir fjárfestingarbankann Ask
ar Capital. Meðal þess sem Sigurður
gerði í sínu starfi var að sjá til þess
að fjármagnið sem nota átti í verk
efnið skilaði sér í hús. Þannig hafði
hann milligöngu um það með bréfi
til Kaupþings í Lúxemborg árið 2007
að 110 milljóna króna
greiðsla Eiðs Smára
á hlut hans í Ches
ter Court yrði innt af
hendi. Sigurður kom
líka að umdeildum
fjárfestingum Mile
stone og Askar í
Makaó.
U
nglingahljómsveitin
White Signal spilar
á Menningarnótt í
Reykjavík um helgina.
Þetta eru krakkar á aldrin
um fjórtán til sextán ára sem
hafa æft saman í allt sumar.
Æfingarnar standa frá klukk
an tíu til sex alla virka daga
og einnig hafa þeir staðið að
tónleikahaldi víðs vegar um
borgina. „Þetta er bara það
sem okkur finnst gaman að
gera,“ segir Guðrún Ólafs
dóttir, fjórtán ára söngkona
og hljómborðsleikari White
Signal, um hljómsveitina sem
hefur vakið mikla athygli fyrir
vandaða spilamennsku þrátt
fyrir ungan aldur. Hljóm
sveitin er með um klukku
tíma prógramm en hún tekur
meðal annars lög eftir gamla
meistarann Stevie Wonder,
Jamiroquai, Muse og Bon
Jovi, svo dæmi séu tekin. Það
þarf mikla leikni til að spila
þau lög og hafa krakkarnir
svo sannarlega sýnt að þeir
búa yfir henni.
Æfingin skapar meistar
ann enda hafa þau verið að
spila saman í allt sumar. „Við
lítum bara á þetta sem vinn
una okkar,“ segir Guðrún
sem segir þau vera eilítið á
skjön við jafnaldra sína þeg
ar kemur að tónlistarvali. „Ég
veit ekki um marga sem eru
að hlusta á slíka tónlist,“ segir
hún en þau hafa einnig samið
níu lög sem þau flytja á tón
leikunum. Stefnan er tekin á
Músíktilraunir í vetur en þeir
sem hafa áhuga á að heyra í
þessari efnilegu hljómsveit
geta það við Bryggjuna á
Grandagarði frá klukkan tvö
til hálf fimm og svo á Óðins
torgi klukkan hálf átta. „Við
ætlum að gera allt vitlaust,“
segir Guðrún að lokum.
birgir@dv.is
Æfir átta tíma á dag
n White Signal er metnaðarfull unglingahljómsveit
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 19.–21. áGúSt 2011 94. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Tilboð
69.400
White Signal Ætlar að gera allt vitlaust á Menningarnótt.