Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Síða 41

Frjáls verslun - 01.10.2013, Síða 41
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 41 geta að í fyrra kom út viðamikil skýrsla sem sýndi að Orkuveitan hafði verið blóðmjólkuð á fyrri árum af Reykjavíkurborg sem tók mikið fé út úr fyrirtækinu – en skýrslan vakti verulega athygli og mikið umtal. sterk staða – með stórauknum skatttekjum Ekki verður annað sagt en að fjárhagsstaða borgarinnar sé býsna sterk þegar Jón Gnarr gengur frá borði. Samstæðan skilar meiri rekstrarafgangi á þessu ári en áætlað var vegna aukinna tekna og handbært fé frá rekstrinum er gott. Stórauknar skatttekjur borgarinnar hafa breytt stöðunni – en þeir peningar komu að vísu frá Reykvíkingum sjálfum; reykvískum fjölskyldum sem hafa fyrir vikið minna á milli handanna í annað. Borgin leggur mikið fé til hliðar vegna lífeyrisskuldbindinga starfsmanna og er staðan þar sögð býsna sterk. Mesta áhyggjuefni fyrir Reykvíkinga er hvað útgjöld borgarinnar hafa blásið út sam - fara auknum skatttekjum frá borgarbúum – og getur orðið erfitt að vinda ofan af þeirri þróun og draga úr útgjöldum. Stórauknar skuldir A-hluta borgarinnar, m.a. vegna mikilla fjárfestinga í skólahúsnæði og sundlaugum, hljóta líka að vera áhyggjuefni – enda ævinlega spurning um hveru fjárhagslega arðbærar slíkar fjárfestingar eru þótt þær séu félagslega arðbærar. Gert er ráð fyrir að skuldir A-hlutans aukist á næsta ári og verði 67 milljarðar króna. Af orðum borgarstjórans hefur mátt skilja að farið hafi verið m.a. í þessar fjárfestingar til að skapa ný störf og ýta undir atvinnusköpun í borginni. Þar að auki hefur borgin, eins og önnur sveitarfélög, tekið á sig auknar álögur í útgjöldum vegna aukins atvinnuleysis og félagslegra bóta sem hafa fylgt atvinnuleysinu. Mörgum finnst hins vegar sem of lítið fé hafi farið í snyrtingu borg - arinnar og að viðhald gatna sé ekki nægilega gott og geti kostað verulegt átak og útgjöld eftir nokkur ár. Hefur Jón Gnarr verið góður borgar stjóri eða ekki? Margir svara FJárhaGsleGar upplýsinGar 1. Heildarskuldir og skuldbindingar hafa aukist samtals um 17,0 milljarða kr. í tíð Jóns Gnarrs frá ársbyrjun 2011 til ársloka 2013. 2. fjárfestingar í tíð Jóns Gnarrs eru samtals 19,5 milljarðar kr. frá ársbyrjun 2011 til ársloka 2013. 3. ný löng lán í tíð Jóns Gnarrs eru samtals 12,7 milljarðar kr. frá ársbyrjun 2011 til ársloka 2013. 4. Útsvarstekjur í tíð Jóns Gnarrs eru 14,4 milljörðum kr. hærri á árinu 2013 en 2010. 5. Heildartekjur í tíð Jóns Gnarrs eru 15,9 milljörðum kr. hærri á árinu 2013 en 2010. Meðaltal 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 Heildarskuldir: 31,7 33,8 47,8 57,0 60,9 64,8 67,0 fjárfestingar: 10,3 4,8 5,3 5,9 6,8 6,8 löng lán tekin í A-hluta: 0,0 6,0 4,2 6,5 2,9 3,3 Heildartekjur: 58,9 60,0 61,0 68,6 73,1 76,9 82,5 Útsvar (brúttó) 41,9 41,3 40,5 48,4 51,6 54,9 (þar af útsvarstekjur v. málefna fatlaðra) 0,2 0,3 0,6 4,0 4,3 Gr. til jöfnunarsjóðs vegna skóla og mál. fatl. -2,4 -2,4 -2,3 -5,6 -5,9 fasteignaskattur 11,5 12,1 11,7 11,0 11,2 Aðrar tekjur 8,7 9,3 10,9 10,5 11,2 10,7 söluhagnaður (tap) -0,7 -0,2 0,1 0,2 0,1 Heildargjöld: 56,7 57,0 61,2 71,0 72,9 75,9 81,7 laun og launat. gjöld 28,8 30,8 31,3 35,0 37,4 39,5 Annar rekstrarkostnaður 27,1 25,4 26,5 28,5 29,3 30,1 Rekstrarafgangur: 2,2 3,0 -0,2 -2,4 0,2 1,0 0,8 launavísitala: 345 358 375 408 432 457 Heildarskuldir miðast við í lok hvers árs. A-hluti og allar tölur í milljörðum kr. Áætl. Við gerð fjárhagsáætlunar 2009 var ákveðið að halda uppi öflugum fjárfestingum A-hluta til að skapa atvinnutækifæri í bygg- ingargeiranum og var ákveðið að fjármagna fjárfestingar með langtímalánum RVK09. Sama stefna var áfram við lýði 2010 og 2011. Árin 2012 og 2013 var ákveðið að fjármagna fjárfestingar aðeins að hálfu með aðkomufé og ennfremur settur á laggir 2012 stuttur (sjö ára) skuldabréfaflokkur til að stytta lánstíma. Markmiðið var sett í fimm ára áætlun 2013-2017 að hætta alveg á tímabilinu lántökum vegna fjárfestinga. því til að hann sé hvorki betri né verri en aðir – en augljóslega öðru vísi borgarstjóri. Hann hefur verið umdeildur. Í nýrri könn un Capacent kemur fram að yfir helmingur landsmanna er ánægður með hann – en svo undarlega vill til að í sömu könn - un eru tvöfalt fleiri ánægðir en óánægðir með að hann skuli vera að hætta. Dagur B. Eggertsson mælist um þessar mundir í könn unum sá sem nýtur mesta fylgis til borgarstjóra og hefur hann umtalsverða yfirburði í fylgi yfir Halldór Halldórsson og Björn Blöndal. Björt framtíð, sem væntanlega velur Björn Blöndal til forystu, mælist hins vegar með mesta fylgið í höfuð - borg inni um þessar mundir og meira en Sjálfstæðisflokkurinn. Verði úrslitin á þann veg er ekki líklegt að Dagur setjist í borgarstjórastólinn heldur oddviti Bjartrar framtíðar – arftaki Jóns Gnarrs. En hver er svo fjárhagslegur viðskilnaður Jóns Gnarrs í einni setningu? Stórauknar skuldir, hærri skatttekjur og aukin út gjöld – og hann tók á Orkuveitunni. Hvað geta aðrir stjórnmálamenn svo lært af Jóni Gnarr? Fáir stjórn - málamenn hætta þegar þeir njóta mestra vinsælda. Rekstrarafgangur er fyrir fjármagnsliði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.