Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 42

Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 42
42 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 Í Litlu gulu hænunni segir frá deilum sem urðu um verklag hjá fjölskyldu nokkurri. „Hver vill …“ var spurningin þar í sögunni. Nú er spurt: Hver vill fylla tómarúmið eftir Jón Gnarr borgarstjóra? Hann axlar sína ísbjarnarfeldi með 50 prósent fylgi, leggur niður flokk sinn, sem enginn var, og kveður sviðið og loforðin, sem engin voru. Það myndast tómarúm við brott hvarf Jóns úr ráðhúsinu. Og það er eðli tómarúma að fyllast – ef þau falla ekki saman. En þetta tómarúm verður fyllt. Það kemur nýr borgarstjóri og nýr eða endurnýjaður borgarstjórnarmeirihluti nú þegar stærsti flokkurinn í borgarstjórn, Besti flokkurinn, er horfinn. Þrír komnir á vettvang Gunnar Helgi Kristinsson pró- fessor segir að þrír menn hafi augljóslega hug á að fylla þetta tómarúm: Halldór Halldórsson, Sjálfstæðisflokki, Dagur B. Egg- ertsson, Samfylkingu, og svo Björn Blöndal, aðstoðarmaður Jóns Gnarrs, fyrir Bjarta framtíð – ef hann verður valinn til forystu þar. „Björn Blöndal hefur tvennt með sér: Skoðanakannanir sýna að hreyfingin að baki Jóni Gnarr heldur nær fylgi sínu þótt Jón Gnarr fyllti árið 2010 tómarúm, sem myndaðist við útbreitt vantraust á hefðbundnum stjórnmálum. Nú hverfur hann af vettvangi og skilur eftir sig sama tómarúmið. Hver vill fylla það? fréTTaskýrinG: Gísli krisTjánsson Hver vill fylla tómarúmið? Völdin í borginni eftir kjörtímabil Jóns Gnarrs: ForsíðueFni Björn Blöndal, aðstoðarmaður Jóns Gnarrs, er talinn líklegstur til að leiða Bjarta framtíð. Fari svo – og miðað við fylgi flokksins um þessar mundir er ekki ólíklegt að hann verði næsti borgarstjóri. Dagur B. eggertsson nýtur mesta fylgis til borgarstjóra í könnunum. Hann nýtur þrisvar sinnum meira fylgis til borgarstjóra um þessar mundir en Halldór Halldórsson og Björn Blöndal.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.