Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 51
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 51
Það verður að segjast að ekki voru tekin nein merkjanleg risa stökk í tækninni á árinu – það hef ur frekar einkennst af smærri skref um hjá helstu
risunum í brans anum. Við höfum fengið
svolítið mikið af því sama, nema bara örlítið
hraðara, léttara, kraftmeira og endingarbetra.
Sem er í sjálfu sér gott, en það verður að
segjast að fyrir okkur sem höfum gaman
af nýjungum er kominn tími á krassandi
bylt ingu á einhverju sviði. Eitthvað í ætt við
stóru stökkin sem urðu við innkomu snjall
símans annars vegar og spjaldtölvunnar
hins vegar á markaðinn síð ustu árin.
Í báðum þeim tilvikum var það Apple sem
kastaði sprengju inn á markaði sem höfðu
ein kennst af frekar óspennandi græjum
þeirra sem fyrir voru. Það er því ekki að
furða að margir horfi núna til Apple í bið eftir
næstu stóru sprengju. Hvort Apple svar
ar kallinu er alls óvíst. Á tveimur sviðum
gæti 2013 þó reynst upp hafið að miklum
breyt ingum, þótt enn sé of snemmt að segja
til um hvort sú verði raunin. Annars vegar
með tilkomu tveggja nýrra leikjatölva, en
bæði Xbox One og PlayStation 4 komu á
markaðinn vestanhafs síðari hluta nóvem
ber. Framleiðendur leikjatölva hafa reynt að
gera þær að meira en bara leik tækj um, en
hvort það tekst loks nú að búa til alvöru
af þreyingarmiðstöð fyrir heimilið á eftir að
koma í ljós. Hins vegar hefur átt sér stað
nokkuð merkileg þróun á nýju sviði sem
mögulega gæti orðið næsti suðupottur
tölvu tækninnar: græjuklæðnaði. Með því er
átt við lítil tæki sem hægt er að bera utan
á sér og nýta má til ýmissa hluta. Þetta eru
til dæmis úr, armbönd og gleraugu sem
eru í raun litlar tölvur sem hægt er að nota
til að leysa ýmis verkefni í daglega lífinu.
Það má t.d. svara í símann með úrinu, láta
armbandið fylgjast með því að maður hreyfi
sig nægilega mikið og taka myndir með
gleraugunum – svo eitthvað sé nefnt. Slík
tækni er þó enn á fyrstu stigunum og því
ekki farin að rata á lista bestu græjanna –
enn sem komið er.
Við tökum hér saman margar af þeim
græj um og nýjungum í tæknibransanum
sem hafa vakið hvað mesta athygli á árinu,
bæði á alþjóðavettvangi og hér heima
og tökum að vanda mið af ýmsum helstu
tækni tímaritum heims. Við bendum á hvar
megi fá viðkomandi græjur hér á landi og
nefnum verð þeirra sem við finnum hjá
innlendum netverslunum. Við reynum eftir
fremsta megni að finna hag kvæmasta verð
ið hjá viðurkenndum söluaðila, en getum
þó ekki ábyrgst að vöruna sé ekki að finna
annars staðar á betra verði eða að verð hafi
ekki breyst frá því að blaðið fór í prentun.
En það er ekki eftir neinu að bíða – vindum
okkur í yfirlitið yfir áhugaverðustu græjurnar
árið 2013.
„Ný kynslóð af MacBook
Air kom út á árinu og
var almenn ánægja með
2013-útgáf una af þessari
ofurléttu en öflugu
fistölvu.“