Frjáls verslun - 01.10.2013, Qupperneq 57
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 57
græjur
Báðar verða tölvurnar mikið stökk fram á
við frá fyrri kynslóð, sem er komin talsvert
til ára sinna. Vinnslugetan er margföld,
sem mun án efa sjást vel á útliti leikjanna,
stýribúnaður betri, bæði stýring með stýri
pinnum og með myndavél, og öll netvirkni
orðin öflugri. Það er reyndar einn anginn
enn af þróun leikjatölvanna – bæði Sony
og Microsoft vilja að leikjatölvurnar séu
jafnframt afþreyingarmiðstöðvar heimilis
ins. Til að ná því markmiði er boðið upp
á ýmis öpp sem nýtast til að sækja ýmsa
aðra afþreyingu en tölvuleiki
á netið, t.d. kvik myndir og
tónlist. Sumt af því fæst
þó ekki á Íslandi sökum
höfundarréttarmála og ekki
vitað hvort losnar um þau
höft í bráð.
Erfitt er að dæma
fyrirfram hvort
nýjasta kynslóð
leikjatölvanna
sé raunveru leg
bylting eða bara
hefðbundið skref
fram á við í þróun þessa vinsæla af
þreyingar iðnaðar. Það er þó að minnsta
kosti ljóst miðað við áhuga tölvuleikja
unnenda að PlayStation 4 og Xbox One
munu ekki stoppa lengi í hillum verslana
næstu mánuðina.
Kinectmyndavélin
fylgir með öllum
Xbox One.
PlayStation 4 og Xbox
One munu þó að sjálf-
sögðu skila sér hingað á
endanum og í millitíð-
inni er lítið hægt að gera
annað en fylgjast með
viðtökunum erlendis.
4G
Þráðlaus gagnaflutningstækni
(mánaðargjald frá 1.190 kr. á mánuði hjá
nova.is og vodafone.is). 4G er ekki nýtt
af nálinni á heimsvísu, en þessi hraðvirka
gagnaflutningstækni yfir farsímakerfið kom
loksins til Íslands á þessu ári. Nova og
Vodafone hafa þegar tekið sín 4Gkerfi í
notkun og Síminn mun bætast við undir lok
þessa árs. 4G er frábær tækni fyrir þá sem
vilja vera vel tengdir á ferðinni og sérstak
lega fyrir þá sem búa við lélegt netsam
band yfir landlínu. Svo er bara að vona að
uppbygging kerfanna verði hröð þannig að
sem flestir landsmenn eigi fljótlega kost á
að nýta sér 4G hvar og hvenær sem er.
Samsung Galaxy Note 3
snjallsími (verð frá 139.990 kr., t.d. hjá helstu símafyrirtækj um). Þriðja útgáfan af
þessari mögnuðu græju, sem er í raun millistigið milli snjallsíma og spjaldtölvu, kom út
á árinu. Margir héldu að Notelínan væri skelfileg hugmynd þegar fyrsti síminn kom á
markað, en síminn náði talsverðum vinsældum, sem hafa aukist með hverri nýrri kynslóð.
Note 3 er einn öflugasti snjallsíminn á markaðnum í dag, er með flottan (og stóran) 5,7
tommu skjá og virkar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja geta rissað upp myndir eða skrifað
minnispunkta á snjallsímann, því sérstakur penni fylgir með.
Spotify
tónlistarþjónusta (ókeypis með
auglýsingum, u.þ.b. 1.600 kr. fyrir fulla
áskrift). Spotifytónlistarveitan kom loks
til Íslands á þessu ári, en hún hefur notið
mikilla vinsælda erlendis. Með Spotify
fæst aðgangur að gríðarlega stóru tón
listarsafni og þar á meðal talsverðu safni
íslenskrar tónlistar, sem hægt er að hlusta
á ókeypis ef hlustað er á auglýsingar á
nokkurra laga fresti. Annar styrkleiki Spotify
er hversu auðvelt er að nýta áskriftina
sína á spjaldtölvum og snjallsímum og
þannig vera í raun með tónlistarsafnið sitt
ávallt við höndina, með því tæki sem er
handhægast hverju sinni.